Fjölmargar leiðir færar fyrir Nubo Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. nóvember 2011 12:20 Björn Valur Gíslason segir einkennilegt ef forsenda viðskiptahugmyndar Nubo hafi verið að eignast land.
Fjölmargar leiðir eru fyrir Huang Nubo að koma að fjárfestingu í ferðaþjónustu á Íslandi, án þess að kaupa stórt landsvæði, segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður VG. Hann býst við því að ákvörðun innanríkisráðherra um að synja Nubo um leyfi til að kaupa Grímsstaði á Fjöllum verði rædd á reglubundnum þingsflokkfundi á morgun. Hann segir að þingflokkurinn hafi ekki rætt málið áður. Aðspurður hvort til greina komi að Nubo leigi land á Íslandi til uppbyggingar í ferðaþjónustu segir Björn Valur: „Ég held að það séu fullt af möguleikum fyrir þennan fjárfesti eins og aðra að koma að fjárfestingu í atvinnulífinu á Íslandi án þess að þurfa að kaupa hluta af landinu í leiðinni. Þessi úrskurður hefur ekkert með það að gera. Þetta snýr eingöngu að kaupum á landinu," segir Björn Valur. Björn Valur segir það vera sína skoðun að allir ráðherrar, sama úr hvaða flokki þeir eru, hefðu komist að sömu niðurstöðu og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. „Þetta er lögformleg niðurstaða að vel athuguðu máli. Þetta snertir eingöngu þessi landakaup en snertir ekki þessa viðskiptahugmynd sem slíka, nema að hún hafi eingöngu verið bundin við landakaupin,“ segir Björn Valur. Björn Valur segist ekki vita til þess að fyrirtæki hér á landi séu að kaupa upp lönd og jarðir til að reisa hótel eða verskmiðjur. Ég held að þau semji bara um þetta við sveitarfélög og jarðeigendur,“ segir Björn Valur. Hann segir að það sé mjög sérkennilegt að forsenda viðskiptahugmyndarinnar sé sú að eignast land en ekki viðskiptahugmyndin sjálf.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira