Ágreiningi um 1,2 milljarða kröfu vísað frá dómi Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. nóvember 2011 16:12 Dómari bendir á að ekki megi deila tvisvar um sama málið. mynd/ valli.
Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði frá dómi í dag 1,2 milljarða króna kröfu Reykjavíkurborgar á hendur Landsvaka, dótturfélagi Landsbankans, vegna hlutdeildarskirteina í Peningabréfum Landsbankans. Peningabréf voru einn af sjóðum Landsvaka. Þegar sjóðnum var slitið rétt eftir hrun Landsbankans fékk Reykjavíkurborg einungis greiddar tæpar 69% af eign sinni hjá Landsvaka. Vegna þeirrar rýrnunar sem hafði orðið á eign Reykjavíkurborgar í sjóðnum lýsti borgin kröfu í þrotabú Landsbankans við slitameðferð. Kröfunni var hafnað og var ágreiningi um kröfuna vísað til Héraðsdóms Reykjavíkur. Það ágreiningsmál er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur en því hefur verið frestað ítrekað frá því það var þingfest í júní í fyrra. Í frávísunarúrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í dag segir að krafa Reykjavíkurborgar í því máli sem vísað var frá í dag byggi á sömu málsástæðu og krafa í fyrrgreindu máli. Það er að starfsmenn eignastýringarsviðs Landsbanka Íslands hafi með saknæmum hætti valdið stefnanda tjóni sem Landsvaki beri bótaábyrgð á ásamt bankanum. Kolbrún Sævarsdóttir héraðsdómari segir að Reykjavíkurborg hafi stefnt Landsvaka tvisvar vegna sömu kröfunnar. Hún bendir á í dómnum að í lögum um meðferð einkamála segi að þegar mál hafi verið þingfest verði dóms ekki krafist um þær kröfur, sem séu gerðar í því, í öðru máli. Sé dóms krafist um sömu kröfu í öðru máli skuli vísa henni frá dómi. Það er á þeirri forsendu sem Kolbrún vísar málinu frá dómi.
Mest lesið Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira