Leita samstarfsaðila í Lundúnum Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. nóvember 2011 10:14 Verktakar geta leitað sér samstarfsaðila í Lundúnum fyrir milligöngu Íslandsstofu.
Kannað verður hvort íslensk fyrirtæki eigi möguleika á verkefnum tengdum nýbyggingum og viðhaldi húsnæðis í Lundúnum og nágrenni í sérstakri könnunarferð sem verður farin í byrjun desember. Það er Íslandsstofa sem skipuleggur ferðina, en í henni verður lögð áherslu á að þátttakendur hitti verktaka, arkítekta og aðra sérfræðinga, bæði með heimsóknum á byggingarsvæði og á skipulögðum fyrirtækjafundum. Hermann Ottósson, forstöðumaður Markaðsþróunar Íslandsstofu, segir að unnið hafi verið að því að undanförnu að aðstoða arkitektafyrirtæki í Noregi og Kanada við að afla sér verkefna. Það hafi gengið vel og nokkur íslensk fyrirtæki séu þegar með 90% af sinni veltu erlendis frá. Mikilvægt sé að efla enn frekar markaðsstöðu íslenskra fyrirtæki erlendis til þess að bregðast við þeim sveiflum sem eru í markaðnum hérlendis. Hermann segir að mörg íslensk fyrirtæki, bæði arkitektar og verktakar, búi yfir þekkingu sem sé eftirsóknarverð erlendis. Í Lundúnum sé, að margra mati samankomið mikð af ríkasta fólki heims. „Þarna er fólk að láta betrumbæta húsnæðið sitt og þarna er norræn hönnun að verða ákveðið tískufyrirbrigði. Og þar kunnum við til verka. Við eigum mikið af norrænt menntuðum arkitektum og við eigum fagfólk í smíði og almennt á byggingasviðinu sem kann að vinna á þessu sviði,“ segir Hermann. Hermann segir að í ferðinni verði kannað hvort menn í Bretlandi séu hugsanlega tilbúnir í samstarf með íslenskumfyrirtækjum. „Það er ekki verið að leita verkefna. En við erum að leita að mögulegum samstarfsaðilum sem vildu nýta sér þekkingu og reynslu íslensku fyrirtækjanna og hugsanlega fengið þá til að annast ákveðna verkþætti í verkefnum sem þeir eru með eða vilja bjóða í,“ segir Hermann.
Mest lesið Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira