Fjárhagur hins opinbera batnar milli ára 8. desember 2011 09:29
Fjárhagur hins opinbera hefur batnað töluvert frá því í fyrra. Á þriðja ársfjórðungi ársins var tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 19 milljarða króna eða sem nemur 4,6% af áætlaðri landsframleiðslu ársfjórðungsins og 10,7% af tekjum þess. Á sama tíma í fyrra var tekjuafkoman neikvæð um ríflega 20 milljarða króna eða 5,2% af landsframleiðslu. Þetta kemur fram í Hagtíðindum Hagstofunnar þar sem fjallað er um fjármál hins opinbera á ársfjórðungnum. Fyrstu níu mánuði ársins reyndist tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 56 milljarða króna eða 4,7% af landsframleiðslu þessa tímabils, en til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 68 milljarða króna á sama tíma í fyrra eða 5,9% af landsframleiðslu. Tekjur hins opinbera námu rúmlega 502 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við um 475 milljarða króna árið áður og er hækkunin milli ára 27 milljarðar króna eða 5,7%. Sem hlutfall af landsframleiðslu tímabilsins námu tekjurnar 42,2%. Mest er hækkunin í tekjusköttum sem skiluðu 22 milljörðum króna meiri tekjum á tímabilinu en árið áður. Þá skiluðu vöru- og þjónustuskattar 3,9 milljörðum króna meiri tekjum og tryggingagjöldin 3,7 milljörðum króna meiri tekjum. Aðrar tekjur, aðallega vaxtatekjur og sala á vöru og þjónustu, skiluðu hins vegar um fjögurra milljarða króna minni tekjum. Útgjöld hins opinbera reyndust um 558 milljarðar króna á sama tíma eða sem svarar til 46,9% af landsframleiðslu tímabilsins og hækkuðu um 2,8% milli ára. Stærstu útgjaldaliðirnir eru laun sem áætluð eru 174 milljarðar króna á tímabilinu, kaup á vöru og þjónustu 144 milljarðar króna og félagslegar tilfærslur til heimila ríflega 100 milljarðar króna; samtals hækka þessir liðir um 5,7% milli tímabilanna. Þá er áætlað að vaxtagjöld hins opinbera verði um 61 milljarður króna fyrstu 9 mánuði ársins og opinber fjárfesting 27 milljarðar króna (lækki um 20%). Aðrir útgjaldaliðir hafa staðið í stað eða hækkað lítillega í krónum talið.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira