Vopnafjörður seldi fyrir hálfan milljarð Magnús Halldórsson skrifar 5. desember 2011 20:22
Vopnarfjarðarhreppur hefur selt hlut sinn í útgerðarfyrirtækinu HB Granda fyrir tæplega hálfan milljarð króna. Sveitarstjóri hreppsins segir söluna styrkja fjárhag sveitarfélagsins verulega. Sala sveitarfélagsins á hlutnum gekk í gegn sl. föstudag, en samanlagður hlutur hreppsins og Skiphólma ehf., félags í eigu hans, nam um 2,5 prósentum af heildarhlutafé. Allt það hlutafé hefur nú verið selt á tæplega 480 milljónir króna, að því er Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri hreppsins, staðfesti við fréttastofu í dag. Samkvæmt fundargerð Vopnafjarðarhrepps frá 29. nóvember sl. var það verðbréfafyrirtækið Virðing sem nálgaðist hreppinn með sölu á bréfunum í huga. Viðskiptin voru síðan samþykkt í kjölfarið. Ekki liggja enn fyrir upplýsingar um hver keypti bréfin en það mun vafalítið skýrast í vikunni þegar nýr listi yfir tuttugu stærstu hluthafa verður birtur í Kauphöll Íslands. Sveitarfélagið selur hlut sinn á genginu 12,1 en samkvæmt ársreikningi Vopnafjarðarhrepps var hluturinn bókfærður á genginu 6. Salan mun styrkja fjárhag sveitarfélagsins verulega en heildar vaxtaberandi skuldir þess í lok síðasta árs, samkvæmt ársreikningi, voru um 940 milljónir króna. Þó sveitarfélagið selji eignarhlut sinn í Granda þá hagnast það áfram á starfsemi félagsins á Vopnafirði, sem hefur gengið vel undanfarin misseri, ekki síst vinnslan á Makríl. Arion banki á þriðjungshlut í Granda eftir að Ólafur Ólafsson missti hlut sinn til bankans. Sé mið tekið af þessum viðskiptum er virði hlutarins um 6,6 milljarðar króna og heildarvirði félagsins um 19,8 milljarðar króna.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira