Um 30 yfirheyrðir Magnús Halldórsson skrifar 2. desember 2011 19:00
Um þrjátíu manns hafa verið yfirheyrðir af embætti sérstaks saksóknara í tengslum við rannsókn á málefnum Glitnis. Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurði yfir þremur fyrrverandi starfsmönnum bankans. Rannsókn embættis sérstaks saksóknara teygir anga sína langt aftur í tímann, eða um sjö ár frá deginum í dag. Sérstaklega eru það meint brot sem falla undir markaðsmisnotkun sem grunur er uppi um að hafi staðið yfir margra ára tímabil, eða frá 2004 og fram að falli bankanna haustið 2008. Meðal þeirra sem boðaðir hafa verið í skýrslutöku vegna málsins er Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis, en hann hætti störfum hjá bankanum 2007. Heildarumfang viðskiptanna sem til rannsóknar eru, er yfir hundrað milljarðar króna. Það er upphæð sem nemur meira en fimmföldum áætluðum útgjöldum ríkisins vegna atvinnuleysisbóta á næsta ári, en þau nema rúmlega Þrír fyrrverandi starfsmenn Glitnis, Lárus Welding, fyrrum forstjóri bankans, Jóhannes Baldursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta, og Ingi Rafnar Júlíusson, fyrrverandi starfsmaður bankans, hafa allir verið í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni síðustu tvo sólarhringa. Þeir kærðu allir gæsluvarðhaldsúrskurðina til Hæstaréttar, og skiluðu greinargerðum til réttarsins í dag. Hæstiréttur staðfesti nú rétt fyrir fréttir gæsluvarðhaldsúrskurðina og verða þremenningarnir áfram í haldi, á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira