Ekki byrjar það vel hjá Miami Heat - Miller frá í átta vikur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. desember 2011 19:00 Mike Miller. Mynd/Nordic Photos/Getty
NBA-leikmennirnir mega nú mæta í æfingahús sinna liða á nýjan leik og þeir hafa því byrjað undirbúning sinn fyrir komandi tímabil þrátt fyrir að formlegar æfingabúðir liðanna hefjist ekki fyrr en 9. desember næstkomandi. Einn leikmaður getur þó ekki byrjað að æfa strax. Mike Miller, leikmaður Miami Heat, missti mikið úr á síðasta tímabili vegna meiðsla og náði sér aldrei almennilega á strik. Óheppni hans heldur áfram því hann þurfti að dögunum að fara í aðgerð vegna kviðsslits. Miller verður því frá næstu átta vikur og mun missa af byrjun tímabilsins. „Það er ótrúlegt hvað ég er búinn að vera óheppinn. Þegar það rignir hjá mér þá rignir eins og það sé hellt úr fötu," sagði Mike Miller. Mike Miller meiddist á hægri þumal á undirbúningstímabilinu í fyrra, glímdi við axlarmeiðsli stóran hluta tímabilsins og þurfti síðan að fara í aðgerð á vinstri þumal eftir að tímabilinu lauk. Udonis Haslem, Chris Bosh og Joel Anthony voru allir mættir þegar Miami Heat opnaði aftur dyrnar fyrir leikmenn sína en það er ekki búist við að LeBron James og Dwyane Wade mæti ekki fyrr en í næstu viku. Forráðamenn Miami eiga síðan eftir að fylla í margar lausar stöður áður en liðið verður klárt í slaginn.
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira