Par með barn í tíu ár að safna fyrir fyrstu íbúðinni Magnús Halldórsson skrifar 1. desember 2011 20:00
Sé mið tekið af upplýsingum frá Hagstofunni og velferðarráðuneytinu tekur það ungt par með eitt barn um tíu ár að safna fyrir útborgun vegna kaupa á 20 milljóna króna íbúð. Tökum dæmi af ungu pari, með eitt barn, sem er nýkomið úr háskólanámi. Samkvæmt opinberum neysluviðmiðum eru útgjöldin ríflega 500 þúsund krónur á mánuði, með öllu. Ýmsar tölur innan þessa mats eru þó umdeilanlegar, t.d. er húsnæðiskostnaður fyrir 120 fermetra íbúð umtalsvert meiri á markaði en neysluviðmiðin gera ráð fyrir. Á sama hátt má gera ráð fyrir að ungt fólk, með lítið sem ekkert sparifé milli handanna, eyði minna í almenna neyslu og tómstundir viðmiðin gera ráð fyrir. Í þessu dæmi er kostnaðurinn við þess tvo þætti skorinn niður um 50 prósent. Þá er heildarkostnaðurinn ríflega 450 þúsund. Út frá gögnum Hagstofu Íslands má gera ráð fyrir að byrjunarheildarlaun fólksins sem nýkomið er úr námi séu samtals 663 þúsund, að meðaltali. Að teknu tillliti til frádráttar, skatta og annarra gjalda, sitja eftir um 487.320, í besta falli. Mánaðarlegur sparnaður, samkvæmt þessu dæmi, er því tæplega 35 þúsund krónur. Fyrir íbúð sem kostar 20 milljónir á markaði, sem er hóflegt verð fyrir dæmigerð fyrstuíbúðarkaup, þarf parið að safna fjórum milljónum króna, miðað við hefðbundin skilyrði fyrir lánafyrirgreiðslu, eða 80% af kaupverði. Það tekur um tíu ár, miðað við fyrrnefndar forsendur, að safna þeirri upphæð. Samkvæmt sérfræðingum sem fréttastofa hefur rætt við innan fjármálageirans, er algengt nú um stundir að ungt fólk fái lán fyrir foreldrum eða öðru venslafólki fyrir því sem upp á vantar þegar lán er tekið. Einfaldlega vegna þess, að langan tíma tekur að safna upp nægu lausu fé frá grunni.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira