Tveir kærðu strax til Hæstaréttar Magnús Halldórsson skrifar 1. desember 2011 10:33
Tveir af þeim þremur sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald í gærkvöldi af Héraðsdómi Rekykjavíkur, í tengslum við rannsókn embættis sérstaks saksóknara á málefnum Glitnis, hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar, samkvæmt heimildum fréttastofu. Ekki er útilokað að þeir geri það allir, þar sem frestur til þess að kæra úrskurðinn er ekki liðinn. Frestur til þess að kæra í málum sem þessum er innan þriggja sólarhringa. Þessir tveir lýstu því yfir þegar úrskurðurinn lá fyrir að hann yrði kærðu til Hæstaréttar. Embætti sérstaks saksóknara getur ekki kært þá niðurstöðu að hafna því að setja Elmar Svavarsson, miðlara, í varðahald og því er sú niðurstaða endanleg. Eins og greint hefur verið frá, þá voru Jóhannes Baldursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta Glitnis, Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Ingi Rafnar Júlíusson, fyrrverandi starfsmaður bankans, allir úrskurðaðir í varðhald í gær, á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hverjir það voru sem kærðu niðurstöðuna strax til Hæstaréttar, en það eru sem sagt tveir af þessum þremur hér að ofan. Í tilkynningu frá embætti sérstaks saksóknara frá því í gær kemur fram að rannsókn málsins tengdist einkum fjórum þáttum. Þeir eru: 1. Kaup eigin viðskipta Glitnis á hlutabréfum útgefnum af bankanum á verðbréfamarkaðinum. Einnig kaup bankans og ráðstöfun á hlutabréfum útgefnum af FL Group. 2. Lánveitingar til ýmissa félaga vegna kaupa á hlutabréfum útgefnum af bankanum í lok árs 2007 og á árinu 2008. Upphaflegur höfuðstóll nefndra lánveitinga er talinn nema samtals tæpum 37 milljörðum króna. 3. Viðskipti með framvirka samninga í hlutabréfum útgefnum af bankanum. 4. Sölutrygging Glitnis á 15 milljarða hlutafjárútboði FL Group áramótin 2007 og 2008. Til rannsóknar er grunur um meint brot á auðgunarbrotakafla hegningarlaga í tengslum við ráðstafanir á fjármunum Glitnis, brot á lögum um verðbréfaviðskipti, lögum um fjármálafyrirtæki, lögum um ársreikninga og lögum um bókhald. Upphaf rannsókna á málunum má m.a. rekja til kæra frá Fjármálaeftirlitinu og síðan rannsókna slitastjórnar Glitnis.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira