Stjórnarmenn lásu um viljayfirlýsinguna í fjölmiðlum Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. desember 2011 16:00 Kjartan Magnússon er afar óhress yfir samráðsleysi um söluferli Perlunnar.
Stjórn Orkuveitunnar fékk ekki í hendur neinar upplýsingar um einstök tilboð í Perluna áður en skrifað var undir viljayfirlýsingu um söluna við hæstbjóðanda. Þetta fullyrðir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og stjórnarmaður i OR. Hann segir að slík gögn hafi verið send stjórnarmönnum með tölvupósti laust fyrir klukkan þrjú í dag eftir að stjórnarmenn höfðu lesið um umrædda viljayfirlýsingu í fjölmiðlum í morgun. Kjartan segir jafnframt að umrædd viljayfirlýsing hafi verið undirrituð af forstjóra Orkuveitunnar 24. nóvember síðastliðinn en hún hafi ekki enn verið borin upp í stjórn fyrirtækisins til kynningar eða samþykktar. Hann segir að viljayfirlýsingin hafi verið send stjórnarmönnum í tölvupósti laust fyrir klukkan fjögur í dag eftir að hann hafði óskað sérstaklega eftir henni. „Afar ámælisvert er að slík viljayfirlýsing um sölu á einni af stærstu eign Orkuveitunnar sé undirrituð án þess að stjórn fyrirtækisins sé fyrst upplýst. Þaðan af síður var reynt að afla samþykkis stjórnar fyrir viljayfirlýsingunni þrátt fyrir að fimm stjórnarfundir hafi verið haldnir frá því tilboðsfrestur rann út 18. október síðastliðinn," segir Kjartan. Hann bætir því við að á fundi stjórnar Orkuveitunnar sl. föstudag hafi fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna gert alvarlegar athugasemdir við þau vinnubrögð meirihluta stjórnar OR, að leggja ekki gögn um sölu Perlunnar fyrir stjórn þrátt fyrir að tveir mánuðir væru liðnir frá því að tilboðsfrestur rann út. Kjartan tekur fram að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi stutt þá ákvörðun í júní síðastliðnum að setja Perluna á sölulista og gefa einkaaðilum þannig kost á að leggja fram kauptilboð og hugmyndir um hvernig hægt væri að nýta mannvirkið enn frekar í þágu Reykvíkinga og ferðaþjónustu í borginni.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira