Fjármálakerfið styrkist að mati Más 14. desember 2011 10:00
Fjármálakerfið stendur traustari fótum en síðastliðið vor. Þetta segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í formála sínum að ritinu Fjármálastöðugleika sem Seðlabankinn hefur gefið út. „Efnahagsbati hófst á seinni hluta síðasta árs og hefur samkvæmt nýjustu tölum verið að sækja í sig veðrið. Honum hefur á þessu ári fylgt meiri atvinna og aukinn kaupmáttur launa. Til viðbótar hafa lægri innlendir raunvextir og endurskipulagning skulda bætt fjárhagsstöðu heimila." Þá segir Már að staða fyrirtækja virðist á heildina litið hafa batnað. „En hún er hins vegar ákaflega breytileg. Þannig hefur afkoma margra fyrirtækja í útflutningi verið góð vegna lágs raungengis krónunnar og hagstæðs afurðaverðs. Góða stöðu hafa fyrirtækin m.a. notað til að greiða niður skuldir. Fyrirtæki í öðrum greinum sem ekki hafa lokið sinni fjárhagslegu endurskipulagningu standa mörg hver ekki undir skuldsetningunni. Á heildina litið hefur endurskipulagningu skulda heimila og fyrirtækja hjá bönkum og öðrum lánastofnunum miðað töluvert áleiðis að undanförnu. Skuldsetning heimila og fyrirtækja fer því minnkandi, bæði vegna endurgreiðslu lána í samræmi við skilmála og vegna niðurfærslu og afskriftar skulda. Um þessar mundir er áætlað að skuldir heimila og fyrirtækja sem hlutfall af landsframleiðslu séu um 314% og hafi lækkað um sem nemur rúmri einni landsframleiðslu frá hámarki þeirra um mitt árið 2009." „En ástandið er viðkvæmt," bætir seðlabankastjóri við. „Skuldir einkageirans hafa að sönnu lækkað, en þær eru enn miklar. Sama má reyndar einnig segja um skuldir hins opinbera. Ný áföll, t.d. vegna alþjóðlegrar efnahagsþróunar, gætu því aukið vanskil á ný. Enn sem komið er hafa áhrif ríkisskulda- og bankakreppunnar á evrusvæðinu verið lítil hér á landi. Þar virðist einkum tvennt skipta máli. Í fyrsta lagi eru bæði ríkissjóður og bankarnir lítt háðir erlendri fjármögnun og gjaldeyrishöftin veikja áhrif hræringa á alþjóðlegum fjármálamörkuðum á innlendan fjármálamarkað. Í öðru lagi er samsetning útflutnings með þeim hætti að hann er minna háður hagsveiflu í einstökum viðskiptalöndum en reyndin er í ýmsum öðrum litlum löndum sem reiða sig meira á útflutning á iðnaðar- og tæknivöru," segir Már en bætir við að verði hins vegar mun dýpri samdráttur í Evrópu en nú er spáð muni það óhjákvæmilega hafa margvísleg neikvæð áhrif hér á landi. „Erlendum ferðamönnum gæti t.d. fækkað og dregið úr beinni erlendri fjárfestingu. Reikningar fjármálafyrirtækjanna sýna samspil bata og áhættu sem dregur dám af þjóðhagslegum skilyrðum og stöðu lántakenda."Hér má nálgast ritið.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira