Sala á Horni ein umfangsmesta sala á eignum almennings Magnús Halldórsson skrifar 12. desember 2011 18:27
Fyrirhuguð sala Landsbankans á dótturfélaginu Horni er ein umfangsmesta sala á eignum í eigu almennings frá því bankarnir voru seldir fyrir um níu árum. Ekki liggur fyrir hvenær söluferli á félaginu, að hluta eða í heilu lagi, fer af stað. Skattgreiðendur eru langsamlega stærstu eigendur Landsbankans með yfir 80 prósent eignarhlut. Sala á dótturfélagi bankans, fjárfestingarfélaginu Horni, sem fyrirhuguð er á næstu mánuðum, er því í reynd umfangsmikil sala á almenningseigum. Samkvæmt síðasta birta árshlutareikningi Horns er eigið fé félagsins yfir 32 milljarðar króna, skuldir ríflega ellefu milljarðar og eignir um 42 milljarðar. Félagið er því með traustan efnahag. Eignir félagsins eru margvíslegar. Samkvæmt opinberu eignasafni félagsins er eina skráða eign félagsins tæplega tveggja prósenta hlutur í Intrum sem skráð er á markað í Svíþjóð. Óskráðar eignir eru hins vegar mun fleiri. Þar m.a. fjögur prósent hlutur í Eimskip, tæplega 14 prósenta hlutur í Eyri Invest, stærsta eiganda Marels, 6,5 prósenta hlut í Oslo Bors, félags sem heldur utan um Oslo Bors sem heldur utan um kauphallaviðskipti í Noregi, tæplega helmingshlutur í Promens og síðan umtalsverður hlut í Stoðum, en eignin skiptist í tæplega sjö prósent af A-hlutabréfum og rúmlega 42 prósent af B-hlutabréfum. Samtals gerir þetta tæplega 13 prósent af atkvæðabæru hlutafé félagsins. Þessu til viðbótar á félagið síðan fleiri eignir, svo sem laust fé og ríkisskuldabréf. Ekki liggur enn fyrir hversu stór hlutur verður seldur í Horni við skráningu né heldur hvenær hún fer fram. Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi bankans, segir að undirbúningsvinna sé enn í gangi en að henni lokinni muni liggja fyrir hvernig staðið verður að sölu á hlutum í félaginu.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira