Aðildarviðræður: Fjórum köflum lokað í dag 12. desember 2011 14:55 Össur Skarphéðinsson. Mynd/GVA
Fjórum samningsköflum í aðildarviðræðum Íslands að Evrópusambandinu var lokað í dag þegar þriðja ríkjaráðstefna Íslands og Evrópusambandsins fór fram í Brussel í dag. Í tilkynningu í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hafi tekið þátt í henni fyrir hönd Íslands. Fjallað var um fimm samningskafla og lauk viðræðum um fjóra þeirra. Þá segir ennfremur að frá því að efnislegar viðræður hófust í júní hafi 11 af þeim 33 samningsköflum sem viðræðurnar snúast um verið opnaðir og er viðræðum lokið um 8 þeirra eða um fjórðung. „Í upphafi ávarps síns á ríkjaráðstefnunni dag fagnaði utanríkisráðherra ákvörðunum Evrópusambandsins frá því í síðustu viku til að styrkja evrusamstarfið og yfirvinna skuldavanda einstakra ríkja. Hann sagði aðgerðir til að tryggja framtíð evrunnar vera mikilvægt hagsmunamál fyrir Íslendinga sem stæðu frammi fyrir valkostinum um óstöðuga krónu í gjaldeyrishöftum eða stöðuga evru til sem stæði á tryggari grunni en áður. Utanríkisráðherra fagnaði þeim góða árangri sem náðst hefur í aðildarviðræðunum og hvatti til þess að viðræður verði hafnar um þyngri samningskafla, s.s. um sjávarútveg, landbúnað, byggðamál og myntsamstarf,“ segir ennfremur. Össur sagði einnig að nú væri í fyrsta sinn fjallað um kafla sem ekki sé hluti af EES. „Það er kafli 23 um réttarvörslu og grundvallarréttindi en þeim kafla var lokað samdægurs enda eru lög á Íslandi sambærileg regluverki ESB. Það helgast meðal annars af aðild Íslands að Mannréttindasáttmála Evrópu og öðrum alþjóðlegum sáttmálum. Utanríkisráðherra sagði baráttuna fyrir mannréttindum vera forgangsmál og þar ætti Ísland sannarlega samleið með ESB.“ „Utanríkisráðherra sagði á fundinum að þegar Íslendingar verða aðilar að ESB, að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu, þá myndu þeir leggja til að verkefni sem tengjast lagningu sæstrengs, norðursiglingum og uppbyggingu Íslands sem fjarskiptamiðstöðvar á norðurslóðum verði hluti af styrkhæfum áætlununum ESB, en samningskaflinn um samevrópsk net fjallar um uppbyggingu samgöngu-, orku-, og fjarskiptaneta í Evrópu,“ segir einnig í tilkynningunni. Össur bætti því við að íslenskt atvinnulíf hefði frá gildistöku EES-samningsins notið góðs af þátttöku í verkefnum tengdum atvinnu- og iðnstefnu ESB, sem og evrópskum félagarétti. „Það hefði meðal annars styrkt samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja, veitt þeim aðgang að stórum markaði. Það væri litlum og meðalstórum fyrirtækjum til hagsbóta en vöxtur þeirra er lykilatriði í að skapa þau 35 þúsund störf sem þurfa að verða til á Íslandi á næsta áratug.“Óska eftir aðlögunartímabili er kemur að framlögum Loks sagði utanríkisráðherra að þrátt fyrir að Ísland hafi náð góðum árangri í endurreisn efnahagslífsins eftir hrun væri enn verk að vinna sem krefðist varkárni og aga í ríkisfjármálum. Af þeim sökum óskar Ísland í samningsafstöðu sinni í kaflanum um framlagsmál eftir aðlögunartímabili þannig að sem minnst áhrif verði á greiðslustöðu ríkissjóðs þegar til aðildar kemur. Ráðstefnuna ávörpuðu einnig Maciej Szpunar aðstoðarutanríkisráðherra Póllands en Pólverjar fara með formennsku í ESB, og Stefan Fule stækkunarstjóri Evrópusambandsins. Þá greindi fulltrúi Danmerkur hjá ESB frá áformum danskra stjórnvalda í formennsku sinni í Evrópusambandinu í upphafi næsta árs.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira