Samherji fær verðlaun 29. desember 2011 13:27 Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja. mynd/ sigurjón.
Samherji hf. hlýtur Viðskiptaverðlaun Viðskiptablaðsins fyrir árið 2011. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri, veittu verðlaununum viðtöku við hátíðlega athöfn í hádeginu að því er fram kemur í tilkynningu en það var Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, sem afhenti verðlaunin. „Samherji er í dag alþjóðlegt sjávarútvegs- og matvælaframleiðslufyrirtæki og hefur þá sérstöðu að vera með stærri hluta af umsvifum sínum utan Íslands. Þá hafa síðustu tvö ár verið Samherja sérstaklega hagfelld og fjárfestingar félagsins í Frakklandi, á Spáni og í Kanada hafa þegar skilað félaginu tekjum. Samherji hefur einnig aukið bein umsvif sín hér á landi, nú síðast með kaupum á Útgerðarfélagi Akureyrar," segir ennfremur í rökstuðningi fyrir útnefningunni. „Samherji sendir í dag út um 700 launaseðla í hverjum mánuði hér á landi. Erlend fyrirtæki sem Samherji á hlut í hafa nú á hálfu ári gert samninga við íslensk iðnfyrirtæki fyrir um 900 milljónir króna. Það er því óhætt að segja að samfélagslegu áhrifin af starfsemi Samherja eru gífurleg hér á landi," sagði Björgvin Guðmundsson, ritstjóri Viðskiptablaðsins, við afhendingu verðlaunanna nú fyrir stundu. Þá hlaut nýsköpunarfyrirtækið Meniga Frumkvöðlaverðlaun Viðskiptablaðsins árið 2011 sem einnig voru veitt í dag. Það var Georg Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Meniga, sem veitti verðlaununum viðtöku. „Meniga hefur hannað heimilisbókhaldslausn sem allir stóru viðskiptabankarnir hér á landi hafa tekið í notkun. Lausnin auðveldar fjölskyldum að fylgjast náið með eyðslu og tekjum heimilisins án mikillar fyrirhafnar þar sem sjálfvirkni er í fyrirrúmi."
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira