2500 kall meira í skatt Hafsteinn Hauksson skrifar 27. desember 2011 13:21
Meðallaunamaður greiðir 2500 kalli meira í skatta á mánuði á næsta ári, en lægra hlutfall tekna sinna. Skatthlutföll breytast nánast ekkert, en viðmiðunarmörk þrepaskattsins hækka og persónuafslátturinn líka. Tekjuskatturinn tekur tiltölulega litlum breytingum um áramótin eftir miklar breytingar á skattkerfinu undanfarin ár. Áfram greiða launþegar tekjuskatt í þremur þrepum, en skatthlutföllin eru alveg óbreytt frá því á árinu 2011. Mörkin á milli fyrsta og annars þreps hækka raunar um tæpa tíund og verða 230 þúsund krónur eftir áramót, en mörkin milli annars og þriðja þreps hækka mun minna og verða tæpar 705 þúsund krónur á nýju ári. Þar sem neðri þrepamörkin hækka meira en þau efri má ætla að skattar leggist hlutfallslega þyngra á þá tekjuhærri en þá tekjulægri. Þá hækkar persónuafslátturinn um 5,2 prósent, álíka mikið og verðbólgan á árinu, og verður tæpar 47 þúsund krónur. Meðalstaðgreiðsluhlutfallið hækkar lítillega, eða um 0,03 prósentustig, en það skýrist fyrst og fremst af því að Reykjavíkurborg hækkaði útsvarið. Nú er svo komið að 67 af 75 sveitarfélögum leggja á hámarksútsvar, en aðeins tvö lágmarksútsvar. Fréttastofu reiknast til að dæmigerður launamaður hafi haft um 370 þúsund krónur í reglulegar heildartekjur á mánuði í ár, en þær verði orðnar yfir 380 þúsund krónur á næsta ári að teknu tilliti til samningsbundinna launahækkana. Allt það sem áður var talið mun hafa þau áhrif á þennan meðaljón að hann greiðir rúmar hundrað þúsund krónur í skatt á nýju ári, sem er um 2500 kalli meira en í fyrra, en hins vegar 0,2 prósentustigum lægra hlutfall tekna hans.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira