Peningastefnunefnd var sammála um stýrivaxtaákvörðunina Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. desember 2011 16:33 Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.
Tillaga seðlabankastjóra um að halda stýrivöxtum óbreyttum þann 7. desember síðastliðinn var samþykkt samhljóða af öllum í peningastefnunefnd. Þetta kemur fram í fundargerð nefndarinnar sem var gerð opinber í dag. Á fundinum ræddu nefndarmenn ný gögn um þjóðarbúskapinn sem höfðu komið fram frá síðasta fundi og voru sammála um að þau væru í meginatriðum í takt við spá Seðlabankans sem birt var í nóvemberhefti Peningamála. Hagtölurnar sýndu að efnahagsbatinn á Íslandi hefur haldið áfram þrátt fyrir að það dragi úr hagvexti í heiminum og óvissa hafi aukist. Í umræðunum kom einnig fram að þótt niðurstöður verðbólgumælinga að undanförnu hefðu verið heldur betri en búist hafði verið við væri verðbólga enn fyrir ofan verðbólgumarkmið Seðlabankans. Peningastefnunefndin telur þó að þróun að undanförnu bendi til þess að verðbólga færist aftur að markmiðinu á næstu misserum. Á fundinum kváðust nefndarmenn þeirrar skoðunar að núverandi vaxtastig virtist um það bil við hæfi á komandi mánuðum í ljósi efnahagshorfa og hugsanlega óhagstæðrar alþjóðlegrar efnahagsþróunar. Væri horft lengra fram á veginn yrði hins vegar að mati nefndarmanna nauðsynlegt að draga úr núverandi slaka peningastefnunnar eftir því sem efnahagsbatanum vindur fram og dregur úr slaka í þjóðarbúskapnum. Að hve miklu leyti þessi aðlögun ætti sér stað með hærri nafnvöxtum færi þó eftir framvindu verðbólgunnar. Innlánsvextir eru 3,75%, hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum 4,5%, vextir af lánum gegn veði til sjö daga 4,75% og daglánavextir 5,75%.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira