Magic: Kobe verður að fá meiri hjálp frá Gasol og Bynum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. desember 2011 14:45 Kobe Bryant. Mynd/Nordic Photos/Getty
Magic Johnson hefur tjáð sig um möguleika Los Angeles Lakers á því að vinna NBA-meistaratitilinn á þessu tímabili en margir líta svo á að þetta sé síðasti möguleikinn fyrir Kobe Bryant að fara alla leið með liðinu. „Kobe þarf að sjá til þess að Pau Gasol og Andrew Bynum komist báðir í gang og hann þarf síðan að velja rétta tímann fyrir sig að taka af skarið," sagði Magic Johnson. „Kobe þarf á hjálp að halda til að Lakers verði eitt að bestu liðunum og hann þarf enn meiri hjálp núna en undanfarin tímabil," sagði Magic en Dallas sópaði Lakers-liðinu út úr úrslitakeppninni í sumar. Magic Johnson og Kobe Bryant hafa báðir unnið fimm meistaratitla með Los Angeles Lakers en Bryant er orðinn 33 ára gamall og gekk í gegnum fjórðu hnéaðgerðina á undirbúningstímabilinu. „Gasol og Bynum verða að eiga sín bestu tímabil því Kobe getur ekki borið alla ábyrgðina lengur. Þeir verða að ríkja í teignum og gefa Kobe tækifæri til að halda sér ferskum," sagði Magic Johnson sem vann sinn síðasta meistaratitil 29 ára gamall. Kobe Bryant skoraði 25,3 stig að meðaltali á síðasta tímabili sem var hans lægsta meðalstigaskor á tímabili síðan veturinn 2003-04.
NBA Mest lesið Íslandsmeistarinn Ægir Þór: „Þetta er bara algjör þvæla“ Körfubolti „Skil ekki af hverju við erum alltaf að koma fólki á óvart“ Íslenski boltinn „Í dag unnum við þetta eins og fjölskylda“ Íslenski boltinn McTominay og Lukaku tryggðu Napoli titilinn Fótbolti „Ertu galinn? Þetta var frábær fótboltaleikur“ Íslenski boltinn „Við þurfum hjálp frá Guði“ Handbolti „Er til eitthvað sem heitir sjöundi gír?“ Handbolti „Við erum með gríðarlega sterka liðsheild“ Handbolti Reka 200 manns eftir tapið fyrir Tottenham Enski boltinn Uppgjörið: KR - Fram 2-3 | Byström sökkti KR-ingum sem hafa tapað þremur í röð Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslandsmeistarinn Ægir Þór: „Þetta er bara algjör þvæla“ Sylvía snýr aftur með nýliðunum: „Hefur verið nauðsynlegur tími fyrir mig“ Blóðgaði dómara Eru klárlega með gæði til að spila í efstu deild Þýskalands Tók við MVP-styttunni og skoraði svo 38 stig Finnur fyrir miklum létti: „Algjört andlegt rugl“ EuroBasket aftur í fjórum löndum og Spánn stefnir á áhorfendamet Utan vallar: Í reykjarmekki alsælunnar Voru með 0,2 prósent sigurlíkur þegar þrjár mínútur voru eftir en unnu samt „Kemur væntanlega risastórt tómarúm“ Lygilegur endurkomusigur Indiana í MSG Sjáðu magnaðar myndir úr klefa Stjörnumanna Valinn verðmætastur eftir besta tímabil í sögu félagsins „Körfuboltaguðirnir voru búnir að ákveða“ Ægir valinn verðmætastur „Þakka Guði fyrir að leyfa mér að upplifa þetta“ Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 77-82 | Stjarnan er Íslandsmeistari Shaq segist hundrað prósent Samfélagið á Sauðárkróki ekki í vinnuhæfu ástandi Þruman skellti í lás og tók forystuna Tryllt eftirspurn eftir miðum „Ég fékk að gera ótal mistök og læra af þeim“ Þakkaði sjálfboðaliðum og minnti á mikilvægi íþrótta Lögmálið: Er NBA að svindla í lottóinu? Svarar Brynjari fullum hálsi: „Óboðleg tilraunastarfsemi á börnum í íþróttum“ Pétur tekur við þjálfun Hauka „Fallegasta samband sem hægt er að mynda“ Reiknar ekki með Shaq í oddaleiknum í Síkinu: „Vesen með nýrun“ Benedikt: Hugsanlega breyta viðtöl línum í dómgæslu „Við máttum ekki gefast upp“ Sjá meira