Nýherji hýsir upplýsingakerfi Reita 21. desember 2011 09:17 Einar Þorsteinsson fjármálastjóri Reita, Emil Einarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Nýherja, Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, og Ottó Freyr Jóhannsson, söluráðgjöf Nýherja.
Reitir fasteignafélag hafa ákveðið að velja Nýherja fyrir rekstur og hýsingu á upplýsingakerfum félagsins. Reitir hafa ennfremur tekið í notkun Rent A Prent prentþjónustu Nýherja sem felur í sér lækkun á árlegum prentkostnaði fyrirtækja. Í tilkynningu segir að Reitir sé þjónustufyrirtæki á sviði útleigu á atvinnuhúsnæði á Íslandi en félagið hefur yfir að ráða fasteignasafni sem samanstendur af um 130 fasteignum sem staðsettar eru víðsvegar um landið. Reitir ákváðu að velja rekstrarþjónustu Nýherja í kjölfar verðkönnunar, en þjónustan felur í sér rekstur á upplýsingakerfum, notendabúnaði og miðlægum búnaði. Reitir völdu ennfremur Rent A Prent þjónustu Nýherja, en þjónustan felur í sér allt að því 25-30% lækkun á árlegum prentkostnaði fyrirtækja. Þá er hægt að fækka prenturum um allt að því 40% með Rent A Prent. Nýherji annast allan prentbúnað, sér um uppsetningu, kennir starfsfólki á tækin og útvegar alla rekstrarvöru, eins og blekhylki og pappír. Í Rent A Prent er einnig fyrirbyggjandi viðhald og viðgerðarþjónusta innifalin en fylgst er með ástandi allra prentara í gegnum vaktþjónustu. "Hjá Nýherja eru tölvukerfi Reita vistuð í kerfisrými sem hefur öryggisvottun ISO 27001. Við leggjum áherslu á öguð vinnubrögð og vel skilgreindir ferlar eru lykilþættir í að tryggja fumlausan rekstur tölvukerfa viðskiptavina okkar, hagkvæmni og fyrsta flokks þjónustu. Við bjóðum Reiti velkomið í hóp ört stækkandi hóp viðskiptavina í rekstrarþjónustu hjá Nýherja," segir Emil Einarsson framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs Nýherja. „Við teljum okkar hag betur borgið með því að útvista eigin tölvukerfi hjá Nýherja í stað þess að annast rekstur þess sjálf. Þannig getum við einbeitt okkur að eigin kjarnastarfsemi á meðan Nýherji annast tölvukerfi okkar," segir Einar Þorsteinsson fjármálastjóri hjá Reitum fasteignafélagi.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira