Baron Davis: Valdi New York frekar en Miami og Lakers Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. desember 2011 11:30 Baron Davis. Mynd/Nordic Photos/Getty
Baron Davis, alskeggjaði leikstjórnandinn sem var á sínum talinn í hópi með öflugustu leikstjórnendum NBA-deildarinnar er búinn að finna sér nýtt lið eftir að Cleveland Cavaliers losaði samning hans undan launaþakinu og lét hann fara. Nokkur lið voru á eftir Baron Davis þar á meðal bæði Miami Heat og Los Angeles Lakers. Davis var þó ekki eins spenntur að spila með Kobe Bryant eða LeBron James og hann var að fá tækifæri til að spila með New York Knicks. „Ég hef alltaf fundið mig vel á móti Knicks og þá sérstaklega í Madison Square Garden. Þetta var einstakt tækifæri og of gott til að sleppa því," sagði Baron Davis en hann er reyndar meiddur í baki og verður ekki með New York liðinu fyrstu vikur tímabilsins. New York Knicks var að leita sér að "ódýrum" leikstjórnanda eftir að þeir létu Chauncey Billups fara en þeir eru reyndar líka búnir að semja við Mike Bibby sem olli miklum vonbrigðum hjá Miami Heat á síðustu leiktíð. Baron Davis lék bæði með Clippers og Cavaliers á síðasta tímabili og var þá með 13,1 stig og 6,7 stoðsendingar að meðaltali. Hann er með 16.5 stig og 7,3 stoðsendingar að meðaltali á ferlinum eftir að hafa verið valinn af Charlotte Hornets í nýliðavalinu 1999.
NBA Mest lesið Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Enski boltinn Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Sport New York Knicks vann titil í nótt Körfubolti Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Enski boltinn Félag Arnórs Ingva og Ísaks seldi þjálfara sinn Fótbolti Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Enski boltinn Fleiri fréttir New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Kjartan Atli lætur af störfum Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Curry sneri aftur með miklum látum Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna „Get ekki verið fúll út í mína menn“ Fyrsti sigurinn í rúman mánuð: „Sýndum í dag að við erum með gott lið“ Uppgjörið: KR - ÍR 102-96 | Langþráður KR-sigur Sjá meira