NBA í nótt: Anthony með stórleik í sigri Denver Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. janúar 2011 09:00 Carmelo Anthony. Mynd/AP
Aðeins einn leikur fór fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en í honum vann Denver góðan sigur á Indiana, 121-107. Carmelo Anthony fór mikinn í leiknum og skoraði 36 stig fyrir Denver en þetta var fimmta tap Indiana í röð. Anthony lék sérstaklega mikið til sín taka í þriðja leikhluta er hann skoraði 23 stig en alls setti hann niður sex þrista í leiknum - alla í þriðja leikhluta. Denver hafði harma að hefna í leiknum því síðast þegar þessi lið mættust vann Indiana ótrúlegan sigur á heimavelli, 144-113. Nene skoraði fimmtán stig fyrir Denver og tók þar að auki tíu fráköst. Hjá Indiana var Tyler Hansbrough stigahæstur með 27 stig auk þess sem hann tók tíu fráköst en Paul George kom næstur með sautján stig. Denver er í þriðja sæti í æsispennandi norðvesturriðili þar sem fjögur lið af fimm - Oklahoma City, Utah, Denver og Portland, hafa unnið minnst 25 sigra á leiktíðinni. Indiana er einnig í þriðja sæti síns riðils í Austurdeildinni en með aðeins sextán sigurleiki. Bæði lið eiga ágætan möguleika á sæti í úrslitakeppninni en það virðist ætla að verða talsvert auðveldara að komast þangað upp úr Austurdeildinni.
NBA Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira