Milljarða hagsmunir í húfi 27. ágúst 2011 09:00 bílafloti Mörg hundruð milljarðar króna liggja í bílaflota landsmanna. Hann eldist hratt og ljóst er að ef ná á fram orkuskiptum í samgöngum þarf að endurnýja stóran hluta hans.fréttablaðið/vilhelm
Milljarðar sparast í gjaldeyri náist það markmið að draga úr innflutningi jarðefnaeldsneyta um tíu prósent árið 2020. Þá mun innlend framleiðsla skila umtalsverðu í framlegð. Orkuskipti draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Hvert prósent sem sparast í innflutningi jarðefnaeldsneyta sparar gríðarlega mikinn gjaldeyri. Eins og sést á töflunni hér til hliðar var flutt inn eldsneyti fyrir 55 milljarða árið 2010. Náist markmið ríkisstjórnarinnar um að auka hlut endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum, þannig að þeir nemi tíu prósentum, sparar það, gróflega reiknað á verðlagi ársins 2010, 5,5 milljarða króna. Það er því ljóst að eftir umtalsverðum upphæðum er að slægjast í þeirri viðleitni að efla nýja orkugjafa. Að þessu viðbættu mun öll framleiðsluaukning í öðrum orkugjöfum skapa störf og auka þannig hagvöxt. Öll efnahagsleg rök hníga því að því að auka hlut innlendra orkugjafa. Við það bætist að útblástur gróðurhúsalofttegunda minnkar með bættum áhrifum fyrir umhverfið. Í því liggja einnig efnahagslegir hvatar, því frá og með árinu 2012 þarf að greiða fyrir útblástur á slíkum efnum. Samgöngur og fiskveiðarLangstærstur hluti innflutts eldsneytis er notaður til fiskveiða og í samgöngum, eða um níutíu prósent. Um 104 þúsund tonn af koli svoru flutt inn árið 2010 og um 25 þúsund tonn af koksi. Um níutíu prósent af kolunum eru notuð í Sementsverksmiðjunni á Akranesi. Óverulegt magn af gasi er flutt inn til landsins, en samkvæmt upplýsingum frá Orkustofnun fer um þriðjungur þess í stóriðju, þriðjungur til heimilisnotkunar og þriðjungur í þjónustu og annan iðnað en stóriðju. Sóknarfærið varðandi innlenda orkugjafa liggur því klárlega í samgöngum og fiskveiðum. Græna orkan, klasasamstarf um orkuskipti, miðar að því að auka hlut visthæfra innlendra orkugjafa í samgöngum á kostnað innflutts kolefnaeldsneytis. Markmiðið er að stuðla að verkefnum um visthæfa orku og að nýta umhverfið til að prófa nýjungar í visthæfum samgöngum. Mikilvægt þáttur í því er að gera Ísland áhugavert fyrir slíkar tilraunir og að halda slíku kynningarstarfi áfram með bíla- og vélaframleiðendum. Hluti slíkrar vinnu er menntun, ásamt öflugu rannsóknarstarfi. Innflutningur eldsneytis hefur aukist á undanförnum árum. Árið 1993 voru flutt inn 655 þúsund tonn af jarðefnaeldsneyti, en þau voru orðin 781 þúsund árið 2010. Spáð er hækkandi heimsmarkaðsverði á olíu og minni innflutningur mundi því hafa veruleg sparnaðaráhrif. ÚtblásturÁ Íslandi er hlutfallslega einn stærsti floti einkabíla í nokkru ríki og hátt hlutfall eyðslufrekra bíla. Ísland er með hæstu CO2-meðaltalslosun nýskráðra bíla af öllum löndum á Evrópska efnahagssvæðinu. Meðaltalslosunin hefur minnkað undanfarin ár en heildarlosunin hefur hins vegar aukist með fjölgun bíla. Útblástur gróðurhúsalofttegunda er mældur í gígagrömmum, eða Gg. Hann hefur aukist umtalsvert á undanförnum árum, ekki síst frá samgöngum. Losun frá samgöngum var 621 Gg árið 1990 og 974 Gg árið 2008 og jókst um 57 prósent á því tímabili. Í spá Umhverfisstofnunar um þróun losunar til 2050 er reiknað með að losun frá samgöngum geti orðið á bilinu 847 til 940 Gg árið 2020 með óbreyttri þróun. „Reiknað er með að lykilaðgerðir á sviði samgangna skili þeim árangri að losun frá samgöngum verði um 40-140 Gg minni en ella árið 2020. Með almennri þróun í átt til loftslagsvænni bíla, lykilaðgerðum og öðrum aðgerðum er talið raunhæft að losun vegna samgangna geti verið undir 750 Gg árið 2020, sem væri 23 prósent minnkun losunar frá 2008, en 21 prósent aukning miðað við 1990,“ segir í aðgerðaráætlun umhverfisráðuneytisins í loftslagsmálum. Til þess að svo megi verða þurfa áætlanir um nýja orkugjafa að ganga eftir. Allt undirÍ raun liggur samfélagið allt undir þegar kemur að orkuskiptum í samgöngum. Fjölmargir aðilar munu koma að verkefninu, atvinnulífið og stjórnkerfið. Græna orkan er hatturinn sem allir munu starfa undir. Skipulagsmál sveitarfélaga koma inn í vinnuna; gatnakerfið og skipulag á nýju orkustöðvum eru á þeirra könnu. Samþætta þarf reglugerðir og lög til að verkefnið geti orðið að veruleika. Ljóst er að olíuverð mun hækka á næstunni, nema eitthvað stórkostlegt breytist. Efnahagsleg rök hníga að því að draga úr innflutningi á jarðefnaeldsneyti. Eins og iðnaðarráðherra bendir á skapast einnig fjölmörg störf við nýjan iðnað og því er um þjóðþrifamál að ræða. Verði framtíðarsýn stjórnvalda að veruleika mun því margt breytast í íslensku samfélagi, enda snýst það að miklu leyti – of miklu myndu sumir segja – um bílinn. Vinnufundur 15. septemberOpinber stefnumótunarfundur Grænu orkunnar verður haldinn 15. september. Á hann eru allir þeir sem áhuga hafa á orkuskiptum velkomnir og þar verður haldið áfram að móta þá stefnu sem Ísland mun taka í orkuskiptum og telja upp þær aðgerðir sem grípa þarf til. Þeir sem áhuga hafa á málinu er bent á að setja sig í samband við verkefnisstjórn Grænu orkunnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira