Ísland á betra skilið Össur Skarphéðinsson skrifar 30. ágúst 2011 06:00 Þó að atvinnuleysi minnki, kaupmáttur aukist, auknum hagvexti sé spáð, útflutningsgreinar séu í bullandi stuði, fjárlagahalli minnki samkvæmt áætlun, skuldir Íslands séu á niðurleið, og ríkisstjórninni hafi með fyrirhyggju tekist að tryggja allar greiðslur landsins fram til ársins 2016, þá sjá hinir neikvæðu ungu menn sem leiða stjórnarandstöðuna aldrei til sólar. Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð eru njörvaðir í vítahring bölsýni og neikvæðni sem rímar ekki lengur við veruleikann. Átakanlegt dæmi um það birtist þjóðinni þegar AGS útskrifaði Ísland með hæstu einkunn, og bar lof og prís á þann einstaka árangur sem náðst hefur í efnahagsmálum. Bjarni dró árangurinn í efa. Sigmundur Davíð talaði á þeim nótum að erfitt var að skilja annað en hann teldi að starfsmenn sjóðsins hefðu falsað myndina. Sjálfstætt efnahagsbölÁ síðasta ári settu þessir vonarpeningar stjórnmálanna Íslandsmet í upphrópunum um að Íslendinga biði ekkert nema eymd og volæði. Mantra þeirra um „Ísland á leið til glötunar“ dró kjark úr íslensku þjóðinni. Hún hafði lamandi áhrif á frumkvæði einstaklinga sem alltaf þarf til að vinna þjóð hratt upp úr kreppu. Málflutningur þeirra um sérstaka skattaáþján á Íslandi – á sama tíma og við sitjum á neðri hluta skattastiga OECD – á örugglega þátt í að íslensk fyrirtæki hafa dregið við sig fjárfestingar. Neikvæðni leiðtoga stjórnarandstöðunnar er orðin að sjálfstæðu efnahagsböli. Hlutverk stjórnarandstöðu er ekki bara að gagnrýna, heldur líka að bera fram hugmyndir til mótvægis við stefnu sitjandi ríkisstjórnar. Alvöruleiðtogar verða að hafa pólitíska dýpt til að móta valkosti sem byggja á öðru en svartagallsrausi. En eftir tvö ár í stjórnarandstöðu við erfiðustu aðstæður á lýðveldistímanum hefur þeim félögum ekki tekist að koma fram með aðra efnahagsstefnu en að leika stöðugt kallinn sem Bjartmar Guðlaugsson gerði frægan í „Fúll á móti“. Þessir djúpu veikleikar eru að verða öllum ljósir. Ríkisstjórnin hefur fram að þessu þurft að taka sársaukafullar og óvinsælar ákvarðanir. Einmitt núna ættu að vera kjöraðstæður fyrir stjórnarandstöðu til að skapa sér sess trúverðugs valkosts. Það hefur henni fráleitt tekist. Ástæðan er sú að innmúruð neikvæðni er orðin að vörumerki hennar. Venjulegir Íslendingar eru orðnir dauðleiðir á úrtölum og svartagalli. Þetta kom skýrt fram í nýlegri könnun MMR. Þar vildu 43% þjóðarinnar fremur að Jóhanna og Steingrímur héldu áfram um stjórnartaumana en aðeins 33% vildu Bjarna og Sigmund Davíð til valda. Stöðug neikvæðni skapar nefnilega vantraust. Gjörbreytt efnahagsstaðaÍ síðustu viku komu fram upplýsingar um að kaupmáttur almennings væri að aukast. Hagvöxtur, sem stjórnarandstaðan spáði að yrði lítill sem enginn á þessu ári, verður næstum 3% samkvæmt nýjum spám bæði Seðlabankans og AGS. Atvinnuleysi fer minnkandi, og er miklu minna en í mörgum ríkjum sem Íslendingar bera sig saman við. Skuldir íslenska ríkisins eru sjálfbærar og fara minnkandi. Athyglisvert er að þær eru nú hlutfallslega miklu minni en margra sterkra þjóða á borð við Japan og Belgíu, að ógleymdum Bandaríkjunum. Ríkið stefnir nú hraðbyri að því að skila afgangi á fjárlögum eigi síðar en 2014, þó hugsanlegt sé að jöfnuður náist fyrr. Ríkisstjórninni hefur þar að auki einni allra ríkisstjórna á Vesturlöndum tekist að skýla verst settu þjóðfélagshópunum þannig að ok þeirra vegna kreppunnar varð hlutfallslega minnst. Þar birtist vörumerki jafnaðarmanna. Gríðarsterk gjaldeyrisstaðaÍ síðustu viku sigldu Íslendingar svo fljúgandi byr gegnum sjöttu og síðustu endurskoðun efnahagsáætlunar okkar og AGS – sem þeir Bjarni og Sigmundur Davíð virtust telja tómt plat. Í gegnum sex endurskoðanir stóðumst við öll próf. Íslandi er nú hampað í erlendum fjármálaritum sem dæmi um hvernig hægt er að snúa kolsvartri stöðu upp í jákvæða sókn. Á köflum hefur hins vegar partur af stjórnarandstöðunni farið hamförum gegn efnahagsáætluninni. Ríkisstjórn Íslands hefur sömuleiðis sýnt mikla framsýni og varúð. Mat ríkisstjórnarinnar var að önnur fjármálalægð gæti leitt til erfiðleika við að afla fjármagns til afborgana af erlendum skuldum á næstu árum. Við unnum því hörðum höndum að því að tryggja nægilegan gjaldeyrisforða til að mæta slíkri stöðu – og á það reyndi. Snilld Steingríms birtist í því að hann náði síðasta skipi á erlenda fjármagnsmarkaði áður en heimurinn tók nýja dýfu og gulltryggði stöðu okkar með því að selja íslensk skuldabréf fyrir milljarð Bandaríkjadala – á betri kjörum en stærri þjóðir voru þá að fá. Greiðslur Íslands erlendis eru því tryggðar framundir lok ársins 2016. Það er leitun að ríkisstjórn sem hefur tryggt stöðu síns lands svo tryggilega. Innistæða uppsveifluRíkisstjórnin stóðst þá freistingu sem kom fram í frýjunarorðum stjórnarandstöðunnar um að taka meira út úr innistæðu okkar í fiskistofnum í hafinu. Árangurinn er sá að næstum allar tegundir eru nú á uppleið. Varanleg aukning í þorskkvóta svo nemur þúsundum tonna mun koma fram á næsta fiskveiðiári, og fyrirsjáanlegt að aukningin mun halda áfram á næstu árum. Þegar er búið að slá undir 10 þúsund tonna kvóta í karfa og auka strandveiðar. Viðbót sem nemur heilli loðnuvertíð virðist í sjónmáli. Samhliða hefur umtalsverð hækkun orðið á útflutningsvörum eins og fiskafurðum og áli. Ferðaþjónusta er í sögulegu hámarki. Bókanir fram eftir hausti hafa aldrei verið jafn miklar, og allt útlit fyrir að sameiginlegt átak ríkisstjórnar og ferðaþjónustunnar um vetrarferðamennsku muni skila góðum árangri. Á sama tíma bylgjast skapandi greinar af þrótti eins og stórsókn á mörgum sviðum þeirra sannar. Stórframkvæmdir og orkuöflunStórframkvæmdir eru í bullandi gangi við Búðarháls. Hundruð manna vinna þar sleitulaust. Búið er að selja orkuna til stækkaðs Straumsvíkurvers þar sem hundruð ársverka verða til við endurbætur á álverinu. Góðar líkur eru á að Hverahlíðarvirkjun fari af stað, og að með samvinnu orkufyrirtækja takist að afla orku til að Helguvík geti þróast. Landsvirkjun er búin að bjóða út framkvæmdir vegna virkjunar fyrir norðan, og hefur áform um frekari orkuöflun bæði í Bjarnarflagi, Þeistareykjum og Kröflu. Áætlanir um orkustreng til Evrópu, og hugsanleg tengsl hans við vatnsafl frá Grænlandi, skapa algjörlega nýja möguleika um hærra orkuverð, betri nýtingu framleiddrar orku og aukið orkuöryggi fyrir Ísland – fyrir utan þá innspýtingu sem lagning slíks strengs gæti orðið fyrir íslenskan vinnumarkað. Rammaáætlun, sem við Þórunn Sveinbjarnardóttir hleyptum af stokkum 2007, liggur nú fyrir og er lykill að sátt milli nýtingar og verndunar. Þó deilt sé um einstaka kosti er ljóst að á grunni hennar verður hægt að ráðast í stórfellda orkuöflun á næstu árum. Það rímar við þá staðreynd, að aldrei hafa jafnmargir erlendir aðilar sýnt áhuga á hreinni, endurnýjanlegri orku og nú. Öflun nýrrar orku mun sömuleiðis skapa möguleika á því að flytja áherslu úr frumframleiðslu yfir í þjónustustarfsemi, sem skapar meiri verðmæti fyrir Ísland og fleiri hátæknistörf. Ákvörðun um nýjan fjarskiptastreng milli Evrópu og Ameríku, sem liggur um Ísland, er líkleg til að gjörbreyta möguleikum okkar á þessu sviði, og gera Ísland að leiðandi landi á sviði gagnavera. Tölum ekki niður ÍslandStaðreyndin er sú, að Ísland er á góðri uppleið. Vissulega eru enn erfið verkefni framundan. Sumt hefði sannarlega mátt vinna betur. En um það verður ekki deilt að mikill árangur hefur náðst. Við erum á leið út úr kreppunni. Vandamálið í dag er vantrúin á okkur sjálf. Svartagallið hefur deyft bragðskyn okkar á tækifærin. Við þurfum sameinað átak allra, bjartsýni og góða blöndu af liðsinni stjórnvalda og framtaki einstaklingsins til að ýta leifum efnahagshrunsins aftur fyrir okkur. Við þurfum að byggja upp nýtt Ísland. Stjórnarandstaðan þarf að taka þátt í því, og leyfa sér þann munað að sjá öðru hvoru til sólar. Sérstaklega þeir Bjarni og Sigmundur Davíð. Tölum ekki niður Ísland. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Össur Skarphéðinsson Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Skoðun Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun