Hlaut 15 mánaða dóm fyrir smygl 25. október 2011 03:00 kókaínpakkningar Burðardýrin fluttu hluta efnanna innvortis til landsins.
Tæplega þrítug kona hefur verið dæmd í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að skipuleggja og fjármagna smygl á tæplega 500 grömmum af kókaíni til landsins. Tvö burðardýr, sem hún útvegaði til verksins, voru dæmd í tíu og átta mánaða skilorðsbundið fangelsi. Efnið sem þau fluttu til landsins var sterkt og hefði mátt framleiða úr því rúmlega tvö kíló af kókaíni, að því er fram kemur í dómnum. Burðardýrin tvö, rúmlega tvítug kona og karlmaður á fertugsaldri, voru stöðvuð í Leifsstöð í ágúst á síðasta ári. Þau voru þá að koma frá Alicante á Spáni. Maðurinn reyndist vera með rúm 160 grömm af kókaíni innvortis og konan með afganginn, sumt innvortis en hluta innanklæða. Þau játuðu sök. Konan greindi frá því fyrir dómi að konan sem fékk fimmtán mánaða dóm hefði beðið sig að sækja fíkniefni út og fengi hún 100 þúsund krónur fyrir ferðina. Höfuðpaurinn, sem hún taldi vinkonu sína, hefði síðan annast skipulag ferðarinnar og fjármögnun. Maðurinn kvaðst hafa verið í fíkniefnaskuld á þessum tíma. Hann hefði átt að fá niðurfellingu hennar og hálfa milljón fyrir ferðina. - jss
Fréttir Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira