Til varnar mannorði Ólafs frænda míns Skúlasonar Sigrún Sævarsdóttir Griffiths skrifar 12. nóvember 2011 06:00 Ég tel sjálfa mig vera einstaklega lánsama manneskju. Ég fæddist inn í yndislega fjölskyldu, á yndislegan mann og börn, ég fékk tækifæri til þess að nema það sem ég þráði og hef í námi og starfi fengið ógrynni tækifæra sem ég hef nýtt eftir bestu getu. En lífsins námi lýkur ekki við útskrift úr háskóla. Námsmenn og -konur hafa takmarkað vald til þess að stýra þeim fögum sem á lífsins vegi þeirra verða, heldur þurfa að taka því sem gefst og reyna eftir fremsta megni að draga lærdóm af óútreiknanlegum atburðarásum og mis-hnitmiðuðum „kennurum“. Á undanförnum misserum hef ég orðið fyrir því láni í óláni að læra margt af skelfilegum aðstæðum sem ég og fjölskylda mín höfum neyðst til þess að takast á við. Málið er í alla staði sérstakt, bæði efnislega, sem og hvernig meðhöndlun og umtal það hefur fengið. Málið snýst um frænda, sem ég get ekki annað en lýst sem elskulegum frænda. Nafn hans þekkir þjóðin öll, en nafn hans tengist ekki lengur þeirri manneskju sem hann var, heldur einhverskonar ofbeldisfullu skrímsli sem ég kannast ekki við. Ég hef aldrei hitt þetta skrímsli og myndi með engu móti kannast við lýsingu af því, ef ekki bæri það sama nafn og elskulegur frændi minn. Ólafur Skúlason var mér meira sem afi heldur en móðurbróðir. Hann fylgdist ávallt vel með mér og bræðrum mínum í gegnum uppvöxt okkar og var honum mikið í mun að við myndum ná okkar markmiðum og vegna vel í lífinu. Ólafur var hlýr og glettinn og það var stutt í stríðnisglampann í augum hans. Hann hikaði ekki við að segja manni til, en þrúgandi og ofbeldisfullur ógnvaldur var hann ekki. Ég bjó á heimili Ólafs og Ebbu þegar ég var á fyrsta ári við nám í Tónlistarskólanum í Reykjavík 1994-1995 og var heimagangur á heimili þeirra síðari námsárin tvö. Ég eyddi fjölda kvöldstunda ein heima með Ólafi þegar Ebba var á Oddfellow fundum, í dönskutímum, leikfimi eða að passa barnabörnin og leið aldrei nokkurn tímann að neinu leyti óþægilega í návist hans. Þessar kvöldstundir voru að engu leyti öðruvísi en þær sem ég eyddi með mínum eigin föður. Myndin sem dregin hefur verið upp af Ólafi á undanförnum misserum er mjög skýr. Hann á að hafa verið ógnvaldur inni á heimili sínu, þar sem hann beitti heimilisfólkið líkamlegu, andlegu og kynferðislegu ofbeldi sem hluta af daglegu lífi. Þessi mynd er fullkomlega óskyld þeirri mynd sem ég upplifði sjálf sem ungt barn er ég var í pössun hjá Ólafi og Ebbu á meðan foreldrar mínir voru erlendis, sem stálpað barn sem fékk að dvelja hjá frænda um helgar og fylgdi honum í sunnudagaskólann og síðast sem ungri konu sem fékk að búa inni á heimili hans á meðan ég var í námi. Ebba var ekki kúguð af Ólafi og var andrúmsloftið á heimilinu notalegt í alla staði. Ólafur Skúlason var aldrei ákærður né sakfelldur um glæp í lifanda lífi. Á Íslandi eiga að heita lög sem segja til um sakleysi uns sekt sé sönnuð, en þessu hefur engan veginn verið fylgt í meðferð þessa sérstaka máls. Framið hefur verið mannorðsmorð. Miklir annmarkar eru hins vegar á ásökunum Guðrúnar Ebbu. Enginn getur litið framhjá því hversu mjög saga hennar líkist sambærilegum frásögnum erlendis sem reyndust byggja á fölskum minningum. Eftir situr fjölskylda Ólafs Skúlasonar og hefur reynt eftir fremsta megni að lifa lífi sínu á eðlilegan hátt, en ekki hefur það verið auðvelt. Það er sárt að fylgjast með barnabörnum Ólafs sem elskuðu hann og dáðu, mæta hæðnisröddum vegna þess sem um afa þeirra hefur verið sagt. Ég hef dáðst að æðruleysi og innri styrk barnanna hans og ekkju, hvernig þau hafa haldið ró sinni og rætt þessa hörmulegu atburðarás af yfirvegun, hvað sem á hefur dunað. Ýtt hefur verið að fjölskyldumeðlimum mínum að allt yrði gott og þjáningum myndi linna ef við gengjum í lið með fjöldanum sem ákveðið hefur að Ólafur hafi verið sekur af öllu því sem hann er sakaður um. Gott og vel. En samviskan myndi aldrei leyfa slíkt því sannleikurinn á ekkert skylt með þeim sögum sem í dag fara af heimilislífi og persónuleika Ólafs Skúlasonar. Í ferli undanfarinna missera hef ég af eigin reynslu lært að í málefnalegri umfjöllun verða að koma fram allar hliðar á málum. Varast ber að láta lýðskrum stjórna för, þar sem afleiðingar þess eru ótti við að mæla gegn almenningsáliti, nokkuð sem ávallt ætti að forðast í lýðræðisþjóðfélagi. Ég horfi á heiminn með gagnrýnni augum og varast að gleypa við fyrirsögnum sem fullkomnum sannleika, því að baki hverri fyrirsögn er ósögð saga sem í fæstum tilfellum fær að líta dagsins ljós. Við berum öll ábyrgð á eigin samfélagi og verðum að taka hana alvarlega. Ólafur Skúlason reyndist mér og fjölskyldu minni ávallt vel. Hann var okkur mikil stoð og stytta þegar á móti blés og átti ávallt hlutverk á stærstu stundum lífs okkar. Síðustu ár hafa verið fjölskyldu minni ólýsanlega erfiður tími, en mín heitasta ósk er sú að mannorð míns elskulega frænda fáist endurreist. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Þau sem hafna framförum Birkir Ingibjartsson Skoðun Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson skrifar Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Sjá meira
Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun
Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar
Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun
Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun