Stóra myndin 19. nóvember 2011 00:01 Evrópumálin snúast um framtíðina. Þau snúast um hvort við Íslendingar ætlum að taka skrefið fram á við og treysta samband okkar við önnur sjálfstæð ríki innan vébanda Evrópusambandsins, eða hvort við ætlum að standa í stað og láta EES-samninginn duga. Sjá til, vona það besta og gera enn eina tilraun með sjálfstæða örmynt á sameiginlegum markaði, með eða án gjaldeyrishafta. Svo eru þeir sem vilja stíga skrefið tilbaka, segja upp EES- og Schengen-samningunum. Halda á heiðina eins og Bjartur forðum daga. Fram á við, standa í stað, afturábak. Um þetta snýst valið. Ég er staðfastlega þeirrar skoðunar að langbesta leiðin til þess að eiga vitræna umræðu um þessa valkosti sé að leiða til lykta aðildarviðræður Íslands og ESB. Aðeins þannig fáum við úr því skorið hvort þær hindranir sem hingað til hafa fælt okkur frá því að sækjast eftir fullri aðild séu raunverulegur tálmi eða tilbúið bitbein. Aðeins með því að semja um aðild kemur í ljós hvort sá ávinningur sem aðrar þjóðir hafa notið við aðild á ekki líka við um Ísland. Aðeins aðildarsamningur losa okkur við getgátur um hvað sé gerlegt í samningum og svarar spurningum okkar um kosti og galla aðildar. Þá fyrst getur íslenska þjóðin tekið sjálfstæða ákvörðun um eigin framtíð. Samningaviðræðurnar eru þegar hafnar. Þær hafa hingað til gengið mjög vel. Við höfum þegar opnað 6 kafla af 33 sem um þarf að semja, og lokið viðræðum um fjóra. Það er nánast einsdæmi. Vonir standa til þess að um mitt næsta ár verði viðræður hafnar um alla málaflokka, og lokið um meirihluta samningskafla. Þá fer að sjá til lands. Ávinningurinn af EvrópuÍ umræðunni núna er mikilvægt að greina milli þess sem við vitum og vitum ekki, á milli reynslu fortíðar og væntinga framtíðar. Það sem við vitum er að Ísland hefur notið ríkulegs ávinnings af þátttöku í Evrópusamvinnunni. Aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu tryggði öryggi okkar á viðsjárverðum tímum kalda stríðsins. Aðildin að EFTA og síðar EES skaut traustum þverbitum undir íslenskt atvinnulíf og útflutning okkar. Allar þessar ákvarðanir voru umdeildar á sínum tíma og það þurfti pólitíska forystu og framsýni til að ná þeim í gegn. Í dag er óumdeilt að með þátttöku í Evrópusamvinnunni höfum við tryggt öryggi og bætt lífskjör Íslendinga, aukið fjölbreytni og samkeppnishæfni í atvinnulífinu og skapað tækifæri fyrir íslenskar fjölskyldur og fyrirtæki sem annars hefðu lifað við fábreytni og einangrun. Spurningin sem við stöndum núna frammi fyrir er hvort sú ákvörðun að gerast fullgildur þátttakandi í ESB muni með sama hætti treysta enn frekar fullveldi okkar og framtíð. Reynsla annarra ríkja er vísbending. Öll ríkin sem gengið hafa í ESB telja það hafa þjónað sínum hagsmunum. Frændur okkar Írar segja aðildina hafa gert þeim kleift að stíga upp úr sárri fátækt. Vinir okkar í Eistlandi hafa notið góðs af fjárfestingum og útflutningi. Og norrænar bræðraþjóðir okkar í Svíþjóð, Danmörk og Finnlandi hafa allar notið ESB-aðildar, hver með sínum hætti. Enginn kvartar undan því að hafa glatað sjálfstæði sínu eða yfirráðum yfir auðlindum. Og ekkert aðildarríki vill ganga úr sambandinu, ekki einu sinni mínir góðu vinir í breska Íhaldsflokknum! Nýverið kolfelldu David Cameron og hans menn tillögu um að fram færi þjóðaratkvæðagreiðslu um úrsögn. Bretar eru evróskeptískir en þeir vita sem er að aðildin tryggir hag Bretlands. Þessa vegna sögðu þeir Já við Evrópu og Nei við óvissu og einangrun. En hvað með krísuna?Enginn dregur fjöður yfir þá staðreynd að Evrópa glímir núna við erfiðan efnahagsvanda. En sá vandi er skuldavandi og hann er ekki bundinn við Evrópu heldur teygir anga sína um allan heim. Um það vitnar skýrsla AGS í vikunni. Evrópusambandsríkin hafa nú þegar gripið til margvíslegra róttækra ráðstafana til að vinna sig út úr þessu og tryggja að skuldsetning einstakra ríkja geti ekki endurtekið sig. Það er mín bjargföst trú að evran muni koma sterkari og stöðugri út úr þessum hreinsunareldi. Menn geta verið sammála eða ósammála því mati. En í Evrópu eru menn sammála um eitt: Núverandi efnahagserfiðleikar kalla á meiri samvinnu, ekki minni, og það er enginn að gefast upp. Við þurfum meiri Evrópu til að vinna okkur út úr vandanum. Hvað sem krísunni líður er ávinningur Evrópusamvinnunnar óbreyttur. Kostir innri markaðar Evrópu munu áfram skila sér í bættri samkeppnishæfni, auknum útflutningi og atvinnu eins og Samtök atvinnulífsins þekkja svo vel. Kostir Evrópusamstarfs um nýsköpun og vísindi, menningu og menntun, rannsóknir og þróun, skapa hagvöxt og störf. Það hafa Samtök iðnaðarins og íslensk nýsköpunarfyrirtæki margsinnis bent á. Og grundvallarkostir evrunnar sem felast m.a. í stöðugleika, innra og ytra aðhaldi, lægri vöxtum og verðbólgu, aukinni fjárfestingu og atvinnu hafa ekki breyst. Þess vegna kalla forystumenn íslenskra fyrirtækja eftir upptöku hennar. Íslensk heimili taka undir það. Skuldavandi Grikklands, Ítalíu og fleiri ríkja breytir engu um þessa grundvallarkosti Evrópusamvinnunnar. Það má leiða að því líkur að um það leyti sem við Íslendingar kjósum um aðild verði Evrópusambandið búið að treysta innviði sína og umgjörð efnahagsmála svo um munar. Þá býðst Íslandi aðild að enn sterkara ESB. Framtíðarsýn og stefnufestaStóra myndin er þessi. Við vitum að Evrópusamvinnan á vettvangi EES og EFTA hefur reynst okkur Íslendingum vel og að Evrópusambandsaðild hefur reynst aðildarríkjunum vel. Um það vitnar reynsla annarra Norðurlandaríkja, vina okkar í Eystrasaltsríkjunum og annarra aðildarríkja. Með því að ljúka aðildarviðræðum og fá aðildarsamning á borðið vitum við með vissu hverjir kostir og gallar aðildar eru og getum vegið þá og metið út frá hagsmunum Íslands. Allt tal um að Evrópa sé komin að fótum fram, um endalok sjálfstæðis og auðlindaafsal stenst ekki skoðun. Yfirstandandi skuldavandi einstakra Evrópuríkja er ekki tilefni til óðagots. Stjórnmálin snúast um stefnufestu og framtíðarsýn. Barátta æstustu Evrópuandstæðinganna fyrir því að ganga gegn meirihlutavilja Alþingis, hætta við og breyta umsókninni í bjölluat hefur fengið lítinn hljómgrunn. Þó að skiptar skoðanir séu um aðild eins og vera ber í lýðræðissamfélagi hafa kannanir sýnt að 2/3 hluti Íslendinga vilja ljúka viðræðum og kjósa um aðildarsamning. Íslendingar vilja fá að kjósa um framtíðina. Það munu þeir fá að gera. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Össur Skarphéðinsson Mest lesið Halldór 28.09.2024 Halldór Heilsugæsla í vanda Jón Magnús Kristjánsson Skoðun Að eldast – ertu undirbúin? Hafdís Dögg Sveinbjarnardóttir ,Lára María Valgerðardóttir ,Magnús E. Smith Skoðun Af hverju þetta tímabundna álag á útsvarið? Bragi Bjarnason Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium Skoðun Aðgengi að húsnæði fyrir ungt fólk – ekki lúxus heldur grundvallarréttur Gísli Rafn Ólafsson Skoðun Miðflokkurinn: fjarverandi í landi tækifæranna Lilja Hrund Lúðvíksdóttir Skoðun Ókostir forsetaframbjóðandans Katrínar Jakobsdóttur Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun En hér er ég ekkert... Nichole Leigh Mosty Skoðun Íslensk kjör á íslenskum vinnumarkaði Kristrún Frostadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Græn vindorka Ásdís Hlökk Theodórsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þetta tímabundna álag á útsvarið? Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Aðgengi að húsnæði fyrir ungt fólk – ekki lúxus heldur grundvallarréttur Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Að eldast – ertu undirbúin? Hafdís Dögg Sveinbjarnardóttir ,Lára María Valgerðardóttir ,Magnús E. Smith skrifar Skoðun Heilsugæsla í vanda Jón Magnús Kristjánsson skrifar Skoðun Laxalús og varnir gegn henni Jón Sveinsson skrifar Skoðun En hér er ég ekkert... Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Við getum ekki beðið í 131 ár Jódís Skúladóttir skrifar Skoðun Nýtt upphaf hjá Vinstri grænum Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Íslensk kjör á íslenskum vinnumarkaði Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Viðbrögð við vanlíðan ungmenna Sandra Björk Birgisdóttir skrifar Skoðun Valdatafl Skák og Mát! Lárus Guðmundsson skrifar Skoðun FO: Hvernig getur þú skipt sköpum fyrir konur í Súdan? Áslaug Eva Björnsdóttir skrifar Skoðun Tvö útspil Pírata fyrir notendur heilbrigðiskerfisins Halldóra Mogensen,Eva Sjöfn Helgadóttir skrifar Skoðun Miðflokkurinn: fjarverandi í landi tækifæranna Lilja Hrund Lúðvíksdóttir skrifar Skoðun Við stöndum saman með réttindum táknmálsins! Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Það sem „gleymist“ að segja Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvar er fótspor stjórnvalda gegn vinnumansali? Þorbjörrg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar Joe Camel varð jafngóður vinur barnanna og Mikki mús Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Riddarar kærleikans Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason skrifar Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium skrifar Skoðun Sársaukafull vaxtarmörk Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Tölum íslensku Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee skrifar Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason skrifar Skoðun Um orkuskort, auðlindir og endurvinnslu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar Sjá meira
Að eldast – ertu undirbúin? Hafdís Dögg Sveinbjarnardóttir ,Lára María Valgerðardóttir ,Magnús E. Smith Skoðun
Aðgengi að húsnæði fyrir ungt fólk – ekki lúxus heldur grundvallarréttur Gísli Rafn Ólafsson Skoðun
Skoðun Aðgengi að húsnæði fyrir ungt fólk – ekki lúxus heldur grundvallarréttur Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Að eldast – ertu undirbúin? Hafdís Dögg Sveinbjarnardóttir ,Lára María Valgerðardóttir ,Magnús E. Smith skrifar
Skoðun Tvö útspil Pírata fyrir notendur heilbrigðiskerfisins Halldóra Mogensen,Eva Sjöfn Helgadóttir skrifar
Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar
Að eldast – ertu undirbúin? Hafdís Dögg Sveinbjarnardóttir ,Lára María Valgerðardóttir ,Magnús E. Smith Skoðun
Aðgengi að húsnæði fyrir ungt fólk – ekki lúxus heldur grundvallarréttur Gísli Rafn Ólafsson Skoðun