Skattur fælir kísiliðnað frá 22. nóvember 2011 00:01 „
Ef þetta verður að lögum er ég verulega hræddur um að okkar fjárfestar muni hætta við," segir Magnús Garðarsson, forstjóri Íslenska kísilfélagsins, um fyrirhugaða breytingu á lögum sem munu leggja kolefnisgjald á rafskaut sem meðal annars er notað til kísilframleiðslu. Breytingin er hluti af frumvarpi um ráðstafanir í ríkisfjármálum sem var til umræðu á þingi í upphafi mánaðar. Umsagnarferli er nýlokið og frumvarpið verður næst tekið fyrir í efnahags- og viðskiptanefnd. Íslenska kísilfélagið vinnur að gerð kísilverksmiðju í Helguvík en Magnús segir í samtali við Fréttablaðið að þetta gjald muni breyta öllu umhverfi til kísilframleiðslu hér á landi. „Þetta er mjög hár skattur sem mun hækka enn meira fram til 2015, og þegar svona skattur er kominn er alltaf hægt að halda áfram að hækka hann þar til að svona iðnaður hér á landi verður alls ekki samkeppnishæfur." Magnús bætir því við að þó að Kísilfélagið sé komið lengst í ferlinu, séu fleiri kísilfyrirtæki að undirbúa starfsemi hér á landi. Þau áform séu í hættu vegna kolefnisgjaldsins. „Þetta drepur alveg niður allar efnahagslegar forsendur fyrir kísilvinnslu á Íslandi. Fyrirtækin fara einfaldlega eitthvert annað. Til dæmis er hægt að fá raforku á svipuðu verði í Bandaríkjunum, þar sem ekki er talað um kolefnisskatta." Hann segist jafnframt vera hissa á að stjórnvöld, sérstaklega Vinstri græn, sjái ekki kostina sem kísilframleiðsla á Íslandi hefur út frá umhverfissjónarmiði. Í greinargerð með frumvarpinu er þess getið að álagning kolefnisgjalds verði endurskoðuð á næsta ári, en Magnús segir það ekki gefa ástæðu til bjartsýni. „Við gerðum fjárfestingarsamning við ríkið, einmitt til að tryggja fjárfestum okkar fyrirsjáanlegt hagkerfi. Þar segir að engar áætlanir séu um að leggja nýja skatta á orkufreka starfsemi. Svo er ekki liðið árið áður en svona nokkuð kemur fram. Trúverðugleiki stjórnvalda er enginn ef af þessu verður."- þj
Mest lesið Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira