Orka til stóriðju lítt arðbær 3. desember 2011 00:01 Mynd úr safni
Lægri arðsemi heildarfjármagns er af virkjunum fyrir stóriðju hérlendis en þekkist í sambærilegri starfsemi erlendis. Þetta kemur fram í skýrslu um arðsemi orkusölu sem Ásgeir Jónsson og Sigurður Jóhannesson unnu fyrir fjármálaráðuneytið. Arðsemin á Íslandi nam fimm prósentum á árunum 1966 til 2010. Arðsemi af orkusölu til stóriðju hefur verið verri en annars staðar í atvinnulífinu síðan 1990, en fram að því var hún ívið betri. „Aukin áhætta í rekstri á síðari hluta tímabilsins, s.s. með því að tengja orkuverð við heimsmarkaðsverð á áli, hefur ekki skilað sér í hærri ávöxtun," segir í skýrslunni. Hefði ekki verið um stóriðju að ræða hefði arðsemi Landsvirkjunar hins vegar verið mun lakari en raunin varð, en arðsemi heildarfjármagns af orkusölu til almenningsveitna hefur verið um tvö prósent á tímabilinu. Skattgreiðendur á Íslandi hafa ekki fengið endurgjald fyrir þá ábyrgð sem þeir hafa tekið á sig í tengslum við orkusölu, en skýrsluhöfundar segja hana mjög háa miðað við höfðatölu. Arðsemi af orkusölu til stóriðju hefur verið svipuð fjármagnskostnaði ríkisins. Ekki verður því séð að starfsemi Landsvirkjunar hafi skilað beinni auðlindarentu, en með því er átt við greiðslur fyrir afnot af auðlind eftir að rekstraraðilar hafa haft eðlilegan arð af rekstrinum. Höfundar leggja til að orkufyrirtækjum verði breytt í almenningshlutafélög og notast við verkefnafjármögnun við nýjar framkvæmdir. Þannig verði skatttekjur ríkisins ekki lagðar að veði við byggingu orkumannvirkja. - kóp
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira