Par með hundruð gramma kókaíns 16. desember 2011 03:30 Kókaín innvortis Maðurinn og konan voru hvort um sig með um 170 grömm af kókaíni innvortis.
Par sem var að koma frá Spáni í byrjun vikunnar reyndist vera með kókaín falið innvortis. Parið var úrskurðað í gæsluvarðhald fram á mánudag, en jafnvel er gert ráð fyrir að fólkið verði látið laust í dag þar sem rannsókn málsins hefur miðað mjög vel. Það var á mánudag sem maðurinn og konan, sem bæði eru rúmlega þrítug, voru stöðvuð við hefðbundið eftirlit tollgæslunnar í Leifsstöð. Fólkið var að koma með flugi frá Spáni með viðkomu í Bretlandi. Grunur vaknaði um að það væri með fíkniefni í fórum sínum, sem reyndist á rökum reistur við nánari skoðun. Lögreglan á Suðurnesjum hafði því fólkið í haldi þar til það skilaði niður af sér samtals um 340 grömmum af kókaíni, sem það hafði komið fyrir í pakkningum innvortis. Fólkið, sem er íslenskt og búsett á Suðurnesjum, hefur setið í gæsluvarðhaldi undanfarna daga. Það hefur komið við sögu hjá lögreglu, en brotin munu vera fá og í léttvægari kantinum. - jss
Fréttir Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira