Landsbankinn fellir niður lán stofnfjáreigenda 17. desember 2011 05:00 Landsbankinn eignaðist umrædd lán við yfirtökuna á SpKef í vor. Fréttablaðið/GVA
Landsbankinn mun fella niður flest þau lán sem veitt voru til ríflega 500 einstaklinga og 30 lögaðila við stofnfjáraukningu í Sparisjóðnum í Keflavík, Sparisjóði Húnaþings og Stranda og Sparisjóði Vestfirðinga árið 2007. Þetta gerir bankinn í kjölfar nýlegs dóms Hæstaréttar þar sem stofnfjáreigendur í Byr sparisjóði og Sparisjóði Norðlendinga voru sýknaðir af innheimtukröfum vegna sambærilegra lána. Landsbankinn eignaðist lánin við yfirtökuna á SpKef í mars en Sparisjóðirnir þrír sameinuðust undir merkjum SpKef árið 2008. Dómur Hæstaréttar byggði á því mati að stofnfjáreigendum hefði verið veitt villandi ráðgjöf við lánveitinguna. Í fréttatilkynningu frá Landsbankanum segir að í þessari ákvörðun felist viðurkenning á því að ráðgjöf til kaupenda hafi af hálfu viðkomandi sparisjóða verið ýmist röng eða ófullnægjandi. Landsbankinn mun eins og áður sagði fella flest lánin niður. Þetta á þó ekki við um lán þar sem stofnfjárbréf hafa verið seld en andvirðinu ekki ráðstafað til greiðslu lánsins eins og samið var um. Landsbankinn gat í gær ekki gefið upp heildarupphæð lánanna þar sem ekki sé búið að klára vinnu við að yfirfara lánin. Líklegt má þó telja að þetta hafi samtals verið lán upp á hundruð milljóna hið minnsta og jafnvel vel það. „Aðalatriðið er að þarna er um að ræða fólk sem fékk vonda ráðgjöf og lenti í algjörum forarpytti. Þetta fólk er að losna undan þessum byrðum sem hafa verið mörgum mjög þungbærar,“ segir Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans. - mþl
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira