Skúli Mogensen orðinn einn stærsti hluthafi í Skýrr 7. janúar 2012 13:55 Skúli Mogensen.
Fjárfestingafélagið Títan, sem er í eigu Skúla Mogensen, hefur bæst í hóp stærstu hluthafa Skýrr með liðlega 5% hlut. Samhliða þessu er fyrirhugað að Skúli setjist í stjórn Skýrr á næsta aðalfundi félagsins. "Skúli hefur á undanförnum misserum sannað sig sem þungavigtarmaður í íslensku viðskiptalífi. Hann hefur tekið þátt í að stofna og fjárfesta í fjölda fyrirtækja, bæði hér á landi og erlendis. Jafnframt hefur Skúli yfirgripsmikla reynslu af þekkingariðnaði, sem spannar yfir tvo áratugi. Það er því mikill styrkur í aðkomu hans að Skýrr," segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr. „Markmið Títan er að taka þátt í endurreisn atvinnulífsins á Íslandi með fjárfestingum í þekkingar- og nýsköpunarfélögum með mikla vaxtarmöguleika. Fjárfestingin í Skýrr smellpassar við þá stefnu okkar. Skýrr stendur vissulega á gömlum grunni, en hefur tekið grundvallarbreytingum og vaxið hratt undanfarin tvö ár gegnum sameiningar á átta góðum fyrirtækjum bæði hér heima og erlendis. Fyrirtækið er í dag með víðtæka starfsemi í fjórum löndum og er afar áhugaverður fjárfestingakostur. Það verður einnig spennandi verkefni að sitja þarna í stjórn," segir Skúli Mogensen, eigandi Títan. Á meðal annarra fyrirtækja sem Títan hefur fjárfest í eru MP banki, WOW air, Carbon Recycling International, Securitas, CAOZ, Tindar Verðbréf, Thor Data Center og DataMarket. Aðaleigandi Skýrr með liðlega 75% hlut er Framtakssjóður Íslands, sem er í eigu sextán lífeyrissjóða, Landsbankans og VÍS,en einnig eru liðlega 40 aðrir hluthafar í félaginu. Skýrr er stærsta upplýsingatæknifyrirtæki Íslands og hefur um 1.100 starfsmenn; þar af um 600 hér á landi og um 500 í Noregi, Svíþjóð og Lettlandi. Skýrr velti rúmlega 24 milljörðum árið 2011 og er níunda stærsta upplýsingatæknifyrirtæki Norðurlanda.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira