Metár hjá Icelandair 7. janúar 2012 13:11 Mynd/Valgarður
Árið 2011 var metár hjá Icelandair, sem flutti 1750 þúsund farþega á árinu, eða fimmtungi fleiri en árið áður. Stefnt er að enn frekari fjölgun sæta á þessu ári að sögn framkvæmdastjóra félagsins. Icelandair Group birti í gærkvöldi flutningatölur fyrir árið 2011. Samkvæmt þeim fjölgaði farþegum um rúm 260 þúsund á síðasta ári, eða 18 prósent, en alls voru farþegarnir 1750 þúsund. Sætanýtingin var tæp 80 prósent, en hún jókst jafnframt um tæpt eitt prósentustig. Félagið hefur aldrei áður flutt jafnmarga farþega eða haft jafngóða sætanýtingu. Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri félagsins, segir forsvarsmenn þess afar ánægða með flutningatölurnar. Þær séu í takt við tæplega fimmtungsaukningu á sætaframboði félagsins á síðasta ári, en það hefur neytt færis nú þegar krónan er veik og samkeppnisstaðan góð. „Það er í raun aukning á öllum mörkuðum hjá okkur; til Íslands, frá Íslandi og yfir hafið," segir Birkir. „Þeir markaðir sem eru stærstir til Íslands hafa kannski aukist mest; meginland Evrópu og Bandaríkin auðvitað, með auknu framboði." Birkir segir að félagið sé að vinna að því að þétta tíðnina í leiðakerfi félagsins, og það skapi fleiri farþega til og frá landinu. Á árinu 2012 verður sætaframboðið enn aukið um 14 prósent, og tveimur vélum bætt við flota Icelandair. Þá hafi Denver í Bandaríkjunum bæst við sem áfangastaður og hann sé að bókast vel. Markmiðið sé síðan að auka ferðamannastrauminn til landsins utan sumartímans, eins og fjallað var um í fréttum Stöðvar 2 í gær. „Við höfum fulla trú á því að það sé hægt að byggja upp meiri ferðamannastraum yfir vetrartímann og hlutfallslega erum við að auka mest framboð okkar á þessu tímabili. Við erum bjartsýn á að við náum því."
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira