Skýrslutökur hafnar hjá rannsóknarnefnd Íbúðalánasjóðs Þorbjörn Þórðarson skrifar 5. janúar 2012 18:30
Vinna rannsóknarnefndar sparisjóðanna og rannsóknarnefndar Íbúðalánasjóðs er komin á fullan skrið og eru skýrslutökur hafnar hjá rannsóknarnefnd Íbúðalánasjóðs. Hinn 6. september var skipuð rannsóknarnefnd Alþingis vegna rannsóknar á Íbúðalánasjóði. Í henni eiga sæti Sigurður Hallur Stefánsson, fyrrverandi héraðsdómari, formaður nefndarinnar, Kirstín Flygenring hagfræðingur og Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við viðskiptafræðideild Háskólans á Akureyri. Um er að ræða hliðstæða nefnd og skipuð var vegna rannsókna á falli sparisjóðanna en í henni sitja þau Sigríður Ingvarsdóttir, héraðsdómari, sem er formaður nefndarinnar, Tinna Finnbogadóttir hagfræðingur og Bjarni Frímann Karlsson, lektor í viðskiptafræði. Verkefni þeirra er að komast að hinu sanna í rekstri Spron, Byrs, Sparisjóðsins í Keflavík og fleiri sparisjóða. Í raun verður rekstur sparisjóðanna afhjúpaður með sama hætti og gert var í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis vegna falls viðskiptabankanna. Báðar rannsóknarnefndirnar eru með vinnuaðstöðu við Austurströnd 5 á Seltjarnarnesi, sem áður hýsti skrifstofur landlæknis. Starf þarf nefndanna er nú komið á fullan skrið og samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru formlegar skýrslutökur nú hafnar hjá rannsóknarnefnd Íbúðalánasjóðs. Hjá rannsóknarnefnd sparisjóðanna fengust þau svör að formlegar skýrslutökur væru ekki hafnar, en nefndin hefði tekið óformleg viðtöl við nokkurn fjölda. Sniðið verður með svipuðum hætti og hjá rannsóknarnefnd Alþingis vegna falls viðskiptabankanna. Skýrslutökur verða hljóðritaðar og mun efni þeirra síðan nýtast í skýrslu sem leiða á í ljós fjárhagsvanda Íbúðalánasjóðs, en sjóðurinn þurfti í lok árs 2010 33 milljarða króna lausafjáraðstoð frá ríkinu en án þessarar aðstoðar hefði sjóðurinn ekki verið starfhæfur í óbreyttri mynd. Skýrsla rannsóknarnefndar sparisjóðanna verður eftir svipaðri fyrirmynd. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira