Þrír framkvæmdastjórar ráðnir til FME 4. janúar 2012 14:06
Þrír nýjir starfsmenn hafa verið ráðnir í stöður framkvæmdastjóra nýrra eftirlitssviða Fjármálaeftirlitsins.Stöður framkvæmdastjóra eftirlitssviðanna þriggja voru auglýstar í nóvember síðastliðnum og hefur Fjármálaeftirlitið nú gengið frá ráðningu framkvæmdastjóra þeirra. Halldóra E. Ólafsdóttir, sem verið hefur framkvæmdastjóri lífeyris- og verðbréfasjóðasviðs Fjármálaeftirlitsins frá því í apríl 2008, var ráðin framkvæmdastjóri eindareftirlitssviðs. Lúðvík Þorgeirsson, sem starfað hefur hjá Actavis og þar áður hjá Tryggingamiðstöðinni hf. var ráðinn framkvæmdastjóri greiningar- og áætlanasviðs. Sigurveig Guðmundsdóttir, hagfræðingur á lífeyris- og verðbréfasjóðasviði Fjármálaeftirlitsins, var ráðin framkvæmdastjóri vettvangsathugunarsviðs. Nýju framkvæmdastjórarnir munu fljótlega taka til starfa og taka virkan þátt í uppbyggingu nýrra eftirlitssviða. Alls bárust 72 umsóknir um framkvæmdastjórastörfin. Við ráðningu og val naut Fjármálaeftirlitið aðstoðar Capacent. Fram fór fjölþætt mat á umsækjendum þar sem lagt var mat á mismunandi hæfniþætti, meðal annars með viðtölum, persónuleikaprófum og skriflegum verkefnum. Unnið hefur verið að skipulagsbreytingum innan Fjármálaeftirlitsins frá því í október síðastliðnum með virkri þátttöku starfsmanna. Afrakstur vinnunar er endurskipulagning Fjármálaeftirlitsins sem meðal annars felst í því að fimm svið hafa verið lögð niður og þrjú ný eftirlitssvið stofnuð. Nýju eftirlitssviðin þrjú eru, eins og fyrr greinir frá, eindareftirlit, vettvangsathuganir og greiningar- og áætlanir. Hið nýja skipulag er verkefnamiðað og taka nýju eftirlitssviðin þrjú við öllum verkefnum frá þeim fimm eldri sviðum sem lögð eru niður en skipting þeirra tók að miklu leyti mið af geirum fjármálamarkaðarins. Markmið skipulagsbreytinganna er að auka enn skilvirkni og samhæfingu í starfseminni. Nýtt skipulag býður meðal annars upp á meiri sveigjanleika í nýtingu mannauðs og hámarkar þannig slagkraft Fjármálaeftirlitsins að því er greint er frá í tilkynningu frá FME.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira