Vildi að metið yrði hvort Kaupþing hefði tapað á afléttingu ábyrgða Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. janúar 2012 14:15
Hæstiréttur hefur hafnað kröfu Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, um að óháðir matsmenn kanni hvert virði eignarhluta hans í Kaupþingi banka var í lok september 2008. Sigurður krafðist þess einnig að metið yrði hvort hann hefði hagnast af þeirri ákvörðun þáverandi stjórnar Kaupþings þann 25. september 2008 að aflétta persónulegri greiðsluábyrgð Sigurðar á lánssamningum og ef svo sé hver sú auðgun hafi verið. Einnig hvort Kaupþing hafi orðið fyrir tjóni vegna þessarar ákvörðunar og hvert tjónið hafi þá verið. Slitastjórn Kaupþings krefst tæplega 550 milljóna króna frá Sigurði og að samningi vegna afléttingu persónulegra ábyrgða á lánum sem hann fékk til hlutabréfakaupa í bankanum verði aflétt. Héraðsdómari hafði hafnað því að kveða til matsmenn á þeirri forsendu að Sigurður hafi ekki krafist matsmannanna strax eftir að Kaupþing höfðaði mál gegn honum vegna afléttingu ábyrgðanna. Slíka kröfu skuli bera fram svo fljótt sem auðið er. Hæstiréttur staðfestir synjun héraðsdóms en á öðrum forsendum. Telur Hæstiréttur að þau atriði sem Sigurður vilji að matsmenn leggi mat á séu ekki af öðrum toga en lögfræðilegum. Það sé hlutverk dómara, en ekki sérfróðra matsmanna, að leggja mat á þessi atriði.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira