Mynd Baltasars stærsta opnun í sögu Working Title kvikmyndaversins Þorbjörn Þórðarson skrifar 15. janúar 2012 18:17
Frumsýning á Contraband, Hollywood-mynd Baltasars Kormáks, er stærsta opnun í sögu Working Title kvikmyndaversins en áætlað er að kvikmyndin hafi halað inn 28,5 milljónir dollara á sinni fyrstu sýningarhelgi, jafnvirði 3,5 milljarða króna. Tekjurnar fóru fram úr björtustu vonum, segir Baltasar Kormákur. Contraband, sem er bandarísk staðfærsla á kvikmyndinni Reykjavík-Rotterdam, skartar Hollywood-stjörnunum Mark Wahlberg og Kate Beckinsale í aðahlutverkum. Baltasar Kormákur leikstýrir en óhætt er að fullyrða að þetta sé hans stærsta verkefni til þessa. Myndin var frumsýnd á föstudag og fór beint á topinn í bæði Bandaríkjunum og Kanada. Samkvæmt tölum frá Working Title er áætlað að sölutekjur myndarinnar yfir helgina nemi 28,5 milljónum dollara. Eins og áður segir er þetta stærsta opnun í sögu Working Title kvikmyndaversins, sem er aðalframleiðandi myndarinnar, en fyrirtækið hefur framleitt á annað hundrað kvikmyndir. Þar má nefna myndir eins og Love Actually, State of Play og Green Zone, sem var með Matt Damon í aðalhlutverki svo eitthvað sé nefnt.Dreymdi ekki um svona góðan árangur „Þetta er algjörlega geðveikt, það er ekki hægt að segja neitt annað. Maður á sína drauma um að hlutirnir gangi vel, en mér hefði ekki dottið í hug að fyrsta myndin sem ég gerði fyrir Working Title yrði stærsta opnunin þeirra," segir Baltasar. Upphaflegur framleiðslukostnaður var 25 milljónir dollara þannig að myndin er strax á fyrstu helgi búin að ná upp í kostnað og gott betur. Mark Wahlberg tók á sig launalækkun, miðað við þá þóknun sem hann tekur venjulega, til að taka þátt í myndinni, en hann er einn af meðframleiðendum hennar.Stærsta opnun Wahlberg þar sem hann er einn í forgrunni Þetta er væntanlega nokkur vegsauki fyrir Wahlberg? „Já, hann hringdi í mig í gær og var alveg svakalega ánægður. Þetta er sennilega besta opnun hans þar sem hann er einn í fronti fyrir mynd. Það eykur „value" hans í þessum bransa og þess vegna var hann ákaflega þakklátur og vill endilega drífa sig í næsta verkefni með mér," segir Baltasar. Það er þegar búið að ganga frá verkefninu sem Baltasar er að vísa í en hann mun leikstýra Wahlberg að nýju í kvikmyndinni Two Guns. „Það er annar stórleikari sem er að skoða það mál, en ég get ekki greint frá nafni hans núna, en það kemur í ljós fljótlega." Baltasar segir að Two Guns sé töluvert stærra verkefni en Contraband, en góð opnun þykir mikil traustsyfirlýsing fyrir leikstjóra. „Því meiri tekjur sem þú aflar, því meiri peningum treystir fólk þér fyrir. En þetta er mjög afstætt allt saman, enda miklar fjárhæðir, maður reynir bara að hugsa um eitthvað annað," segir Baltasar. Baltasar ákvað að vera í faðmi fjölskyldunnar á Hofi á Höfðaströnd þessa frumsýningarhelgi fremur en að vera vestanhafs. Síðdegis í dag bárust svo tíðindin frá kvikmyndaverinu um góða opnun myndarinnar. „Þetta er nánast tvöfalt það sem menn höfðu væntingar um. Ég hafði aldrei heyrt þessar tölur nefndar, að þetta væri inni í myndinni. Myndin er núna að opna á öðrum svæðum og er að ganga vel þar líka. Þetta virðist því ætla að fara vel."Vonar að góður árangur efli íslenska kvikmyndagerð Baltasar er með mörg járn í eldinum, en í bígerð eru kvikmyndirnar Everest og Víking, sem hann skrifaði handrit að ásamt Ólafi Egilssyni, en Working Title er með bæði verkefnin. „Ég er að reyna að fá þá til að taka báðar myndirnar hérna heima," segir Baltasar en að auki er hann með eigin verkefni á Íslandi, og þar má nefna Grafarþögn og Djúpið, en hann stefnir á að ljúka framleiðslu á báðum innan skamms. Þá er fyrirtæki Baltasars, Blue Eyes, að fara að framleiða nýjustu mynd Dags Kára og á dagskránni eru jafnframt nýir sjónvarpsþættir. „Það er í deiglunni að nýta þessa velgengni og þennan kraft til að gera eitthvað spennandi hér heima á Íslandi," segir Baltasar Kormákur. thorbjorn@stod2.is
Tengdar fréttir Tekjurnar af Contraband námu 3,5 milljörðum um helgina Að teknu tilliti til miðasölunnar utan Bandaríkjanna á mynd Baltasars Kormáks, Contraband, voru heildartekjurnar af myndinni yfir 30 milljónir dollara eða um 3,5 milljarðar króna um helgina. 16. janúar 2012 07:04 Mynd Baltasars malar gull í Hollywood Allt stefnir í að Hollywood kvikmynd Baltasars Kormáks, Contraband, verði tekjuhæsta myndin í Bandaríkjunum um helgina, samkvæmt mælingu vefsins boxoffice.com. Áætlar vefurinn að tekjur af myndinni muni nema 24 milljónum, jafnvirði um þriggja milljarða króna. 15. janúar 2012 12:58 Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira
Tekjurnar af Contraband námu 3,5 milljörðum um helgina Að teknu tilliti til miðasölunnar utan Bandaríkjanna á mynd Baltasars Kormáks, Contraband, voru heildartekjurnar af myndinni yfir 30 milljónir dollara eða um 3,5 milljarðar króna um helgina. 16. janúar 2012 07:04
Mynd Baltasars malar gull í Hollywood Allt stefnir í að Hollywood kvikmynd Baltasars Kormáks, Contraband, verði tekjuhæsta myndin í Bandaríkjunum um helgina, samkvæmt mælingu vefsins boxoffice.com. Áætlar vefurinn að tekjur af myndinni muni nema 24 milljónum, jafnvirði um þriggja milljarða króna. 15. janúar 2012 12:58