Kobe búinn að rjúfa 40 stiga múrinn 108 sinnum á ferlinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. janúar 2012 18:15 Kobe Bryant. Mynd/Nordic Photos/Getty „
Þetta var ekki slæmt fyrir sjöunda besta leikmanninn í deildinni," sagði Kobe Bryant eftir sigurinn á Phoenix Suns í nótt en hann varð þá fyrsti leikmaðurinn á tímabilinu til að brjóta 40 stiga múrinn. Bryant tók því greinilega persónulega að hann var settur í sjöunda sætið á netlista yfir 500 bestu leikmenn NBA-deildarinnar. Kobe Bryant skoraði 48 stig í þessum 99-83 sigri Los Angeles Lakers á Phoenix Suns og hefur þar með skorað 25 stig eða meira í undanförnum fimm leikjum Lakers-liðsins. Þetta var janframt 108. leikur hans á ferlinum þar sem að hann brýtur 40 stiga múrinn sem er það langmesta hjá leikmönnum deildarinnar undanfarin fimmtán ár. „Ef ég spila einn slakan leik eins og á móti Denver þá fara allir að öskra á breytingar og tala um að ég sé orðinn of gamall. Það var bara slakur leikur hjá manni með meiddan úlnlið," sagði Kobe Bryant sem skoraði "bara" 16 stig á móti Denver á Nýársdag. Í framhaldinu var hann með 26 stig á móti Memphis á sunnudaginn, 39 stig á móti Golden State, 30 stig á móti Portland, 37 stig gegn Houston og svo 48 stig í leiknum í nótt. Kobe, sem verður 34 ára í ágúst, er með 29,5 stig, 5,7 fráköst og 5,8 stoðsendingar að meðaltali í leik í fyrstu 11 leikjum tímabilsins. Hann er næststigahæsti leikmaður deildarinnar á eftir LeBron James hjá Miami Heat sem er með 29,7 stig, 8,0 fráköst og 7,6 stoðsendingar að meðaltali í leik í 9 leikjum.Flestir 40 stiga leikir undanfarin 15 ár: Kobe Bryant 108 Allen Iverson 74 LeBron James 46 Tracy McGrady 45
NBA Mest lesið Í beinni þegar tilkynnt var að hann væri rekinn Fótbolti Versta byrjun í sögu efstu deildar Fótbolti Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Enski boltinn Forsetinn Eto‘o fær ekki að mæta á leiki þjóðar sinnar Fótbolti Brasilíski miðvörðurinn gríðarlega eftirsóttur Fótbolti Arftaki Þóris fundinn: „Þetta eru stórir skór að fylla í“ Handbolti Dagskráin í dag: Meistaradeild Evrópu og Bónus deild kvenna fer af stað Sport Ronaldo benti til himins: „Vildi að pabbi væri enn á lífi“ Fótbolti Kolbeinn með glæsimark í sigri Gautaborgar Fótbolti Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Enski boltinn Fleiri fréttir Dikembe Mutombo látinn Enginn „heimsendir“ verði Keflavík ekki Íslandsmeistari Teitur valdi besta Íslendinginn í Bónus deildinni Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Sjá meira