Endurgreiddu 2,5 milljarða til skilvísra viðskiptavina 28. janúar 2012 18:45
Arion Banki endurgreiddi í gær samtals 2,5 milljarða króna til skilvísra viðskiptavina bankans. Landbankinn réðst í svipaðar aðgerðir í október en aðrar lánastofnanir hafa ekki tekið ákvörðun um að gera slíkt hið sama. Um 33 þúsund viðskiptavinir Arion Banka fengu endurgreiðslu í gær en bankinn lítur á aðgerðina sem þakklætisvott til einstaklinga sem greitt hafa skilmerkilega af lánum sínum á síðasta ári. Landbankinn hefur einnig gripið til svipaðra aðgerða. Arion Banki hefur hins vegar fengið nokkrar fyrirspurnir síðan á fimmtudag frá viðskiptavinum SPRON en Arion banki tók yfir innlán SPRON í maí 2009, útlánin svo sem húsnæðislán runnu hins vegar til slitastjórnar SPRON eða Dróma sem gerði gerði síðan þjónustusamning við Arion Banka þannig að allar greiðslur á lánum Dróma fara í gegnum Arion banka en eru ekki í raun á efnahagsreikningi Arion. Samkvæmt upplýsingum frá Dróma hafa þeir ekki áætlað að endurgreiða sínum viðskiptavinum á sama hátt og Arion Banki enda ekki með heimild til þess frá kröfuhöfum. Hjá Íslandsbanka fengust þær upplýsingar að aðgerðir til að koma til móts við viðskiptavini séu alltaf í skoðun en bankinn sé hins vegar núna að einbeita sér að sameiningu við Byr. Íbúðalánasjóður sem fer með um 60 prósent íbúðalána hér á landi segir að búið sé að reikna út hvað samskonar endurgreiðsla myndi kosta en engar ákvarðanir hafa verið teknar um aðgerðir en það er á forræði Velferðarráðuneytisins að taka slíka ákvörðun.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira