Arion tekur yfir íbúðalán þrotabús Kaupþings 24. janúar 2012 16:31 Höskuldur Ólafsson, forstjóri Arion banka.
Arion banki og skilanefnd og slitastjórn Kaupþings gerðu nýverið með sér samkomulag um kaup Arion banka á íbúðalánasafni sem verið hefur í sérstökum sjóði í eigu þrotabús Kaupþings. Í tilkynningu frá bankanum segir að samkomulagið taki einnig til fjármögnunar lánanna með yfirtöku sértryggðra skuldabréfa. „Við stofnun Arion banka fyrir rúmum þremur árum yfirtók bankinn hluta þeirra íbúðalána sem verið höfðu í eigu Kaupþings," segir einnig en stærsti hluti íbúðalánasafnsins var hins vegar áfram í sjóði í eigu þrotabús Kaupþings. „Arion banki hefur haft með höndum alla þjónustu gagnvart greiðendum lánanna og því fela kaupin nú ekki í sér neina breytingu fyrir lánþega og viðskiptavini bankans." Safnið er metið á á um 120 milljarða króna. „Með yfirtökunni eflir Arion banki stöðu sína á íbúðalánamarkaði með íbúðalánasafn sem nemur um 200 milljörðum króna. Heildareignir bankans eftir yfirtökun nema rúmlega 900 milljörðum króna." Samkomulagið felur í sér að Arion banki verður útgefandi sértryggðra skuldabréfa í stað Kaupþings. „Sértryggðu skuldabréfin voru gefin út á árunum 2006-2008 til fjármögnunar á íbúðalánum. Arion banki mun þannig auka langtíma fjármögnun sína um rúma 120 milljarða króna. Sértryggðu skuldabréfin verða skráð í kauphöll síðar á þessu ári." „Við yfirtöku Arion banka á íbúðalánum frá Kaupþingi í október 2008 og í janúar 2010 var veittur að meðaltali 21% afsláttur af verðtryggðum lánum sem endurspeglaði meðal annars stöðu lánasafnsins og væntingar um þær afskriftir sem framkvæma þyrfti. Hefur Arion banki þegar fullnýtt það svigrúm sem fyrir hendi var til afskrifta, og gott betur, eins og áður hefur komið fram. Enginn slíkur afsláttur er veittur við kaupin nú þar sem gæði lánasafnsins eru mjög mikil." Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka segir að það sé bankanum mikilvægt taka yfir íbúðalánasafnið. „Um er að ræða gott lánasafn sem er mikilvæg viðbót við aðrar eignir bankans. Við höfum hingað til þjónustað lánþegana án þess að hafa lánin á okkar forræði, en nú eignumst við lánasafnið að fullu. Með yfirtöku safnsins styrkir Arion banki enn frekar stöðu sína á íslenskum bankamarkaði. Við teljum þetta samkomulag gott veganesti fyrir okkur til áframhaldandi uppbyggingar, eflingar þjónustu bankans og vöruframboðs til einstaklinga."
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira