Segir Ingibjörgu hafa viljað 40 milljarða evra lán fyrir bankana
Fyrr í vitnisburði sínum hafði Davíð sagt að hann hefði haft áhyggjur af stöðu bankanna löngu áður en komið var fram á árið 2008. Í aðdranda hrunsins hafi hann oft rætt stöðuna við Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, en Geir hefði ekki alltaf tekið sig trúanlegan. Hugsanlega hafi þeir báðir átt sök á því. „Við höfðum átt náið og gott samstarf í háa herrans tíð og verið félagar og vinir frá því að við vorum strákar. Kannski hafa formlegheitin verið heldur minni," sagði Davíð.
Davíð hefur nú boriði vitni fyrir dómi í um klukkutíma, en hann mun svara spurningum eitthvað fram á daginn.
Tengdar fréttir
Eðlilegt að hafa leynd yfir starfi samráðshópsins
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, segir eðlilegt að starf samráðshóps um fjármálastöðugleika hafi starfað leynt. "Allur kvittur um að stjórnvöld hefðu ekki trú á tilteknum banka gat umsvifalaust haft þau áhrif að áhlaup yrði gert á banka,‟ sagði Björgvin fyrir Landsdómi í morgun. Hann bætti því við að menn hefðu óttast áhlaup sem enginn banki gæti staðist.
Tóku Icesave-vandann mjög alvarlega
Íslensk stjórnvöld tóku Icesave-vandann mjög alvarlega, af því að hann ógnaði stöðugleika á viðkvæmum tímum,” sagði Björgvin G. Sigurðsson í vitnaleiðslum fyrir Landsdómi nú skömmu fyrir hádegið. Hann sagði að vandinn hefði oft verið ræddur. Í huga Geirs Haarde hafi aldrei komið til greina að Ísland tæki á sig ábyrgð á reikningum sem íslensk yfirvöld tóku engan þátt í að stofna.
Bankastjórarnir héldu að bankarnir myndu hrynja 2006
Halldór Ásgrímsson, þáverandi forsætisráðherra, hringdi í Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóra, á laugardegi sumarið 2006 vegna áhyggna bankastjóra viðskiptabankanna af því að bankarnir yrðu komnir á hausinn tveimur dögum seinna. Davíð greindi frá þessu í Landsdómi í dag.
Eins og dauðvona krabbameinssjúklingur
"Þarna var dauðvona krabbameinssjúklingur að fá hjartaáfall" sagði Arnór um fall bankanna þegar hann bar vitni fyrir Landsdómi nú eftir hádegið. Hann sagði að lausafjárvandi banakanna væri eins og hjartaáfall en eiginfjárvandi eins og krabbamein fyrir banka.
Hefði verið tilgangslaust að hafa Icesave í dótturfélagi
"Icesave reikningarnir hefðu aldrei haft neinn tilgang fyrir bankana ef þeir hefðu verið í dótturfélagi,” sagði Arnór Sighvatsson, fyrrverandi aðalhagfræðingur Seðlabankans, fyrir Landsdómi í dag.
Björgvin segist ekki hafa verið leyndur upplýsingum
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, segist alls ekki hafa fengið minni upplýsingar en aðrir um starf samráðshóps um fjármálastöðugleika. Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari sagði að upp hefðu komið ásakanir um að hann hefði verið lausmáll og spurði hvort það gæti hafa orsakað að hann hefði fengið minni upplýsingar en aðrir ráðherrar um starf hópsins.
Segir starf samráðshópsins hafa verið markvisst
Drög að frumvarpi um neyðarlög voru kynnt í viðskiptaráðuneytinu 9. maí 2008, sagði Björgvin. G. Sigurðsson viðskiptaráðherra fyrir Landsdómi í dag. Frumvarpið var undirbúið fyrir tilstuðlan samráðshóps um fjármálastöðugleika.
Davíð segist hafa fengið áhyggjur löngu fyrir fall bankanna
Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, segist hafa haft áhyggjur af stöðu bankanna löngu áður en komið var fram á árið 2008. Ekki hafi allir verið sammála honum í fyrstu. Hann sagði að það sem hefði meðal annars valdið áhyggjum hans hafi verið hvernig fyrirtæki hafi verið keypt upp á ógnarhraða, fyrirtæki rekin ár eftir ár án þess að nokkur sýnilegur hagnaður væri af starfsemi þeirra og of mikið gert úr viðskiptavild þegar eignarstaða fyrirtækja var bókfærð.