Strax merki um vandamál árið 2003 Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. mars 2012 09:20 Tryggvi mætti fyrir Landsdóm í dag. mynd/ gva.
Það er þumalputtaregla að ef banki eykur útlán um meira en 15 prósent á ári, þá er það merki um of mikla áhættu. Þetta sagði Tryggvi Pálsson, sem var ritari samráðshóps um fjármálastöðugleika, þegar hann bar vitni í Landsdómi í dag. Tryggvi sagði að íslensku bankarnir hefðu vaxið miklu meira en þetta. Bankarnir hefðu einkum vaxið á árunum 2003 – 2004 og þá hefði ör vöxtur þeirra strax verið farinn að valda þeim vandræðum. Tryggvi segir að vel hafi tekist til við að bregðast við áfallinu sem varð. Fyrir Landsdómi í dag sagðist hann hafa skrifað grein sem hafi meðal annars birst á Vísi um það hvað hafi vel tekist til. „Ég tel að þegar á hólminn var komið hafi vel tekist til við samningu neyðarlaga og alþingi og ríkisstjórn tekið vel á því,“ sagði Tryggvi. Yfirlýsingin um innlánstryggingar hafi líka verið rétt. Þessir þættir hafi allir tekist vel. „Plús greiðslumiðlunarkerfið sem við bárum hitann og þungann af þó ýmsir hafi viljað taka þá skrautfjöður af okkur. Ég tel að þetta hafi tekist mjög vel,“ sagði Tryggvi.Tryggvi Pálsson er framkvæmdarstjóri fjármálasviðs Seðlabanka Íslands og það var vegna þess starfs sem hann vann fyrir samráðshópinn.
Landsdómur Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Sjá meira