NBA í nótt: Lakers tryggði sér sæti í úrslitakeppninni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. apríl 2012 10:30 Andrew Bynum í leiknum í nótt. Mynd/AP
LA Lakers er nú öruggt með sæti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar eftir öruggan sigur á Denver í nótt, 103-97. Kobe Bryant er þó enn frá vegna meiðsla á fæti og hefur hann nú misst af fjórum síðustu leikjum liðsins. Lakers hefur þó unnið þrjá þeirra. Þjálfarinn Mike Brown var þar að auki á leiknum en hann yfirgaf Staples Center-höllina skömmu fyrir leik af ótilgreindum persónulegum ástæðum. Andrew Bynum skoraði 30 stig fyrir Lakers og tók átta fráköst. Matt Barnes skoraði 24 stig sem er persónulegt met hjá honum á tímabilinu. Dallas styrkti stöðu sína í Vesturdeildinni með sigri á Portland, 97-94. Liðið er í sjötta sæti deildarinnar en átta efstu komast í úrslitakeppnina. Dirk Nowitzki skoraði 24 stig fyrir Dallas og Delonte West ar með 21 stig, sjö stoðsendingar og sex fráköst. Miami vann svo öruggan sigur á lélegasta liði NBA-deildarinnar, Charlotte, 105-82. Miami tapaði fyrir Chicago í fyrrinótt og sigurinn því kærkominn. LeBron James var með nítján stig og Chris Bosh átján. Dwayne Wade var ekki með vegna ökklameiðsla en talið er að hann verði aftur með þegar að Miami mætir New York annað kvöld. Þetta var fimmtánda tap Charlotte í röð í NBA-deildinni. Oklahoma City er á toppi Vesturdeildarinnar en liðið vann Sacramento í nótt, 115-89. Kevin Durant skoraði 20 stig og Russell Westbrook 22.Úrslit næturinnar: Toronto - Boston 84-79 Philadelphia - New Jersey 89-95 Orlando - Atlanta 81-109 Indiana - Cleveland 102-83 New York - Washington 103-65 Miami - Charlotte 105-82 Detroit - Milwaukee 97-113 New Orleans - Utah 96-85 Houston - Phoenix 105-112 Oklahoma City - Sacramento 115-89 LA Lakers - Denver 103-97 Portland - Dallas 94-97
NBA Mest lesið Boxari lést tveimur vikum eftir að hafa gift sig Sport Frakkar sjokkeraðir vegna hópsins sem kemur til Íslands Fótbolti Hundruð milljóna í bónus en gæti þurft að finna sér nýja vinnu Fótbolti Finnur fyrir miklum létti: „Algjört andlegt rugl“ Körfubolti Þeir bestu (6. sæti): Mókollur, Uxi og sumarið 1995 Íslenski boltinn Eru klárlega með gæði til að spila í efstu deild Þýskalands Körfubolti Breiðablik og Valur vonast eftir Disney-ævintýri Fótbolti Blóðgaði dómara Körfubolti Var ekki nógu ánægður með Trent Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Fram 27-28 | Fram Íslandsmeistari í fyrsta sinn í tólf ár Handbolti Fleiri fréttir Sylvía snýr aftur með nýliðunum: „Hefur verið nauðsynlegur tími fyrir mig“ Blóðgaði dómara Eru klárlega með gæði til að spila í efstu deild Þýskalands Tók við MVP-styttunni og skoraði svo 38 stig Finnur fyrir miklum létti: „Algjört andlegt rugl“ EuroBasket aftur í fjórum löndum og Spánn stefnir á áhorfendamet Utan vallar: Í reykjarmekki alsælunnar Voru með 0,2 prósent sigurlíkur þegar þrjár mínútur voru eftir en unnu samt „Kemur væntanlega risastórt tómarúm“ Lygilegur endurkomusigur Indiana í MSG Sjáðu magnaðar myndir úr klefa Stjörnumanna Valinn verðmætastur eftir besta tímabil í sögu félagsins „Körfuboltaguðirnir voru búnir að ákveða“ Ægir valinn verðmætastur „Þakka Guði fyrir að leyfa mér að upplifa þetta“ Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 77-82 | Stjarnan er Íslandsmeistari Shaq segist hundrað prósent Samfélagið á Sauðárkróki ekki í vinnuhæfu ástandi Þruman skellti í lás og tók forystuna Tryllt eftirspurn eftir miðum „Ég fékk að gera ótal mistök og læra af þeim“ Þakkaði sjálfboðaliðum og minnti á mikilvægi íþrótta Lögmálið: Er NBA að svindla í lottóinu? Svarar Brynjari fullum hálsi: „Óboðleg tilraunastarfsemi á börnum í íþróttum“ Pétur tekur við þjálfun Hauka „Fallegasta samband sem hægt er að mynda“ Reiknar ekki með Shaq í oddaleiknum í Síkinu: „Vesen með nýrun“ Benedikt: Hugsanlega breyta viðtöl línum í dómgæslu „Við máttum ekki gefast upp“ Sjáðu ljótt brot Hlyns sem gerði Audda reiðan Sjá meira