NBA í nótt: Boston vann Miami Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. apríl 2012 09:00 Kevin Garnett og Rajon Rondo fagna í nótt. Mynd/AP
Rajon Rondo fór mikinn þegar að Boston vann sigur á sterku liði Miami, 115-107, í NBA-deildinni í nótt. Alls fóru sex leikir fram í deildinni í nótt. Rondo skoraði átján stig og gaf fimmtán stoðsendingar þar að auki. Er það átjándi leikurinn í röð sem Rondo nær minnst tíu stoðsendingum og eru 20 ár síðan leikmaður náði slíkum spretti í NBA-deildnni. Leikmenn Boston voru með 61 prósenta skotnýtingu í leiknum sem er það besta sem leikmenn liðsins hafa náð á tímabilinu. Paul Pierce var stigahæstur með 27 stig og Kevin Garnett bætti við 24 stigum. Hjá Miami var LeBron James stigahæstur með 36 stig auk þess sem hann tók sjö fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Chicago er í efsta sæti Austurdeildarinnar og nú með þriggja sigra forystu á Miami sem er í öðru sæti. Boston er nú í fjórða sæti Austursins. Chicago vann New York, 98-86, þrátt fyrir að Derrick Rose hafi misst af leiknum vegna meiðsla. Richard Hamilton skoraði 20 stig fyrir Chicago og Luol Deng nítján. Dallas vann Sacramento, 110-100, þar sem sex leikmenn NBA-meistaranna í Dallas skoruðu minnst tíu stig í leiknum. Dallas er í sjöunda sæti Vesturdeildarinnar eftir misjafnt gengi að undanförnu.Úrslit næturinnar: Washington - Orlando 93-85 Miami - Boston 107-115 Cleveland - Charlotte 103-90 New Jersey - Philadelphia 88-107 Dallas - Sacramento 110-100 Chicago - New York 98-86
NBA Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira