Ferðamönnum frá Kína fjölgaði um 80% Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. apríl 2012 11:58 Chen Deming og Össur Skarphéðinsson.
Ferðamönnum frá Kína fjölgaði um 80% í fyrra og útflutningur frá Íslandi til Kína jókst um tæp 60%. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti fund með Chen Deming, viðskiptaráðherra Kína, í morgun en hann fer með utanríkisviðskipti og er í föruneyti Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, sem er í opinberri heimsókn hér í dag og á morgun. Ráðherrarnir ræddu yfirstandandi fríverslunarsamningaviðræður Íslands og Kína þar sem utanríkisráðherra óskaði eftir því að ný lota í fríverslunarviðræðunum yrði haldin hið fyrsta og að tollalækkanir á fiskafurðum tækju gildi strax við gildistöku samningsins eða fyrr, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu. Ráðherrarnir fögnuðu auknum viðskiptum milli landanna og utanríkisráðherra hvatti Kínverja til að taka vel á móti íslenskum fyrirtækjum sem sæktu á Kínamarkað. Útflutningur frá Íslandi til Kína jókst um tæp 60% á milli áranna 2010 og 2011 og innflutningur frá Kína um rúm 20%. Þá sóttu um 9000 kínverskir ferðamenn Ísland heim árið 2011 en það er um 80% aukning á milli ára. Á fundinum óskaði utanríkisráðherra eftir útvíkkun á loftferðasamningi ríkjanna sem kínverski ráðherrann sagðist myndu koma á framfæri og hvatti til þess að málið yrði rætt í sameiginlegri viðskiptanefnd landanna ásamt öðrum mikilvægum viðskiptamálum milli ríkjanna. Utanríkisráðherra tók upp málefni norðurslóða og tækifærin sem breyttar siglingaleiðir myndu skapa til framtíðar. Kínverski ráðherrann fagnaði auknum viðræðum milli landanna um þau mál.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira