Félagi vísað úr íslensku 3. deildinni - grunur um erlent veðmálabrask Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. maí 2012 16:15
Vefsíðan Fótbolti.net segir frá því í dag að FFR, Fótboltafélaginu Fjólunni Reykjavík, hafi verið vísað úr keppni í þriðju deild karla og bikarkeppni KSÍ. Íslenskir aðilar stofnuðu félagið í vetur en fljótlega tóku erlendir aðilar við stjórn félagsins. Grunur er um að hér sér veðmálabrask í gangi og þykir svipa til máls sem kom upp í Finnlandi fyrir nokkrum árum. „Samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru aðilarnir í stjórn FFR frá Lettlandi en þeir voru byrjaðir að undirbúa félagaskipti á leikmönnum þaðan til Íslands og þeir leikmenn áttu að skipa lið FFR í þriðju deildinni í sumar. Málið þykir lykta mjög af veðmálabraski og það þykir svipa til máls sem kom upp í Finnlandi fyrir nokkrum árum. Þá keyptu aðilar lið og skiptu öllum leikmönnum út fyrir nýja erlenda leikmenn.Háum fjárhæðum var síðan veðjað á óvænt tap hjá liðinu í finnsku deildinni. Liðið tapaði leik sínum og í kjölfarið létu allir stjórnarmenn sig hverfa og hafa ekki sést síðan þá," segir í fréttinni á Fótbolta.net en hana má finna alla hér. FFR átti að leika í C-riðli í 3. deildinni í sumar en þar sem liði fær ekki þátttökurétt þá þarf að spila þrefalda umferð í þeim riðli í stað tvöfaldar. FFR átti einnig að mæta Fáki í fyrstu umferð bikarsins en Fákur fer núna beint í aðra umferðina þar sem liðið mætir Víkingi R.
Íslenski boltinn Mest lesið Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Enski boltinn Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Enski boltinn Óli Óla: Við getum alveg eins hrokkið upp af á morgun Körfubolti „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ Handbolti Uppgjör: Grindavík - Keflavík 104-92 | Ekkert stöðvar Grindvíkinga Körfubolti Kristian fiskaði rautt og fékk svo rautt Fótbolti Bjarni með tíu og KA áfram í toppbaráttu Handbolti Uppgjörið: Ármann - Tindastóll 77-110 | Tindastóll of stór biti fyrir Ármann Körfubolti Glódís leiðir Bayern áfram í hárrétta átt Fótbolti Fá ekki hollensku stjörnuna til að yfirgefa rándýra hótelsvítu Fótbolti Fleiri fréttir Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Sjá meira