Ákvörðun tekin á næstu dögum um framtíð slitastjórnar Dróma Lóa Pind Aldisardóttir skrifar 8. maí 2012 12:07 Ragnar Hall krefst þess að slitastjórninni verði vikið frá.
Héraðsdómur Reykjavíkur ætlar strax á næstu dögum að taka afstöðu til þess hvort Dróma, slitastjórn Frjálsa fjárfestingarbankans, verði vikið frá störfum. Fréttastofa RÚV sagði frá því í gærkvöldi að Ragnar Hall hæstaréttarlögmaður krefðist þess að héraðsdómur viki slitastjórn Frjálsa fjárfestingarbankans frá störfum. Hann gagnrýndi vinnubrögð slitastjórnar harðlega og sagði hana halda fjölda skuldara í gíslingu. Krafan kemur vegna þess að nú hafa þrenn mánaðamót liðið án þess að slitastjórnin hafi sent endurútreikning á láni hjóna í Vesturbænum sem unnu mál gegn Dróma í Hæstarétti nú í febrúar. Rétturinn komst að þeirri niðurstöðu að Dróma hefði verið óheimilt að reikna seðlabankavexti aftur í tímann á ólögmætt gengislán hjónanna. Fréttastofa ræddi við Eggert Óskarsson, starfandi dómsstjóra hjá Héraðsdómi Reykjavíkur, í morgun. Hann sagði að formlegt erindi hefði borist frá Ragnari Hall um að víkja slitastjórninni. Styrr hefur staðið um störf slitastjórnar Frjálsa fjárfestingarbankans undanfarin misseri en þar situr sama fólk og skipar slitastjórn SPRON og hlutafélagið Dróma, eða lögmennirnir Hlynur Jónsson, Hildur Sólveig Pétursdóttir og Jóhann Pétursson. Boðað verður til fundar með slitastjórninni og Ragnari Hall á næstu dögum hjá Héraðsdómi. Ef ekki næst samkomulag á þeim fundi er tvennt í stöðunni, annaðhvort úrskurðar Héraðsdómur að stjórnin fái tiltekinn frest til að bæta úr vinnubrögðum sínum - eða víkur slitastjórn Frjálsa umsvifalaust frá störfum. Þess má geta að þetta er ekki í fyrsta skipti sem krafa um að víkja slitastjórn Frjálsa frá störfum, slík krafa barst í janúar 2010 en þá var ekki orðið við henni.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira