Telja líklegast að bakkavarabræður eignist Bakkavör á ný Magnús Halldórsson. skrifar 4. maí 2012 18:30
Sérfræðingar svissneska risabankans Credit Suisse telja líklegast að Ágúst og Lýður Guðmundssynir séu að fara eignast ráðandi hlut í Bakkavör á nýjan leik, en fyrirtækið er nú nánast að öllu leyti undir stjórn lífeyrissjóða og banka. Kröfuhafar Bakkavarar Group, móðurfélags Bakkavarar, samþykktu nauðsamning á sumarmánuðum 2010 en á þeim tíma voru heildarskuldir þess 64 milljarðar króna. Starfsemi Bakkavarar er fyrst og fremst í Bretlandi en félagið framleiðir tilbúna rétti sem seldir eru í verslunarkeðjum víða. Samkvæmt nauðasamningum stóð ekki til að breyta kröfum í hlutafé fyrr en um mitt ár 2014, en hinn 24. apríl síðastliðinn var lögð fram tillaga um að kröfuhafarnir myndu eignast nánast allt hlutafé í móðurfélagi Bakkavarar á næstunni. Daginn eftir að þessi tillaga var lögð fram, sendi svissneski risabankinn Credit Suisse frá sér greinginu á stöðu mála hjá Bakkavör. Í henni kemur fram að kröfuhafarnir, sem eru að mestu leyti Arion banki, skilanefnd Glitnis, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og Gildi lífeyrissjóður, myndu eignast 95,9 prósent hlutafjár í móðufélagi Bakkavarar eftir umbreytinguna. Afgangurinn, 4,1 prósent, yrði ennþá í eigu stofnenda Bakkavarar, bræðranna Lýðs og Ágústs Guðmundssona. Viðbúið er að taka kröfuhafa móðurfélags Bakkavarar muni hlaupa tugum milljarða króna, en í árslok 2010 höfðu þrír stærstu lífeyrissjóðir landsins, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Gildi lífeyrissjóður, niðurfært kröfur vegna móðurfélagsins um 7,5 milljarða króna. Sérfræðingar Credit Suisse telja að tilgangurinn með þessari endurskipulagningu, sé sá, að kröfuhafarnir vilji selja allt hlutafé sitt í móðurfélaginu. Bankinn telur að augljósustu kaupendur hlutafjárins séu bræðurnir, Ágúst og Lýður, en sérstaklega er þó tekið fram að bankinn hafi ekki vitneskju um hvaðan peningarnir ættu að koma í þeim viðskiptum.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira