Íslendingur í hópi bónusjarla Lehman Brothers 3. maí 2012 08:06
Sigurbjörn Þorkelsson, sem er einn af eigendum Haga í gegnum fyrirtækið Capital, var með samtals um 24,5 milljónir dollara, eða um 3 milljarða kr., í laun og aðra umbun á árunum 2005 til 2007, þegar hann starfaði hjá bandaríska bankanum Lehman Brothers, m.a. sem yfirmaður afleiðuviðskipta og sem einn af framkvæmdastjórum bankans. Fjallað er um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Þar segir að þetta komi fram í skjölum, sem litu dagsins ljós við skipti á þrotabúi bankans. Sigurbjörn var í 25. sæti yfir launahæstu starfsmenn bankans árið 2007. Í frétt um málið hér á visir.is í upphafi vikunnar sagði að komið hafi í ljós að 50 af launahæstu starfsmönnum Lehman Brothers bankans fengu sem samsvarar yfir 80 milljörðum króna í bónusgreiðslur mánuðina fyrir gjaldþrot bankans haustið 2008. Gjaldþrotið setti hinn alþjóðlega fjármálamarkað á hvolf og varð upphaf fjármálakreppunnar í heiminum. Það er stórblaðið Los Angeles Times sem greinir frá þessu. Í blaðinu kemur fram að hver hinna 50 starfsmanna hafi fengið 8 til 51 milljón dollara í bónusgreiðslur eða samtals um 700 milljónir dollara. Fréttin hefur vakið mikla hneykslun í Bandaríkjunum enda stóð ekki steinn yfir steini í rekstri Lehman Brothers á þessu tímabili.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira