Saksóknari telur að dæma hefði átt Geir fyrir víðtækari brot Magnús Halldórsson skrifar 2. maí 2012 17:25 Frá fundi Orators og Lagastofnunar Háskóla Íslands í dag.
Róbert Spanó, forseti lagadeildar Háskóla Íslands, telur að afnema eigi ákæruvald Alþingis þegar kemur að brotum gegn lögum um ráðherraábyrgð, og færa slíkar rannsóknir í hefðbundinn farveg sakamála. Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari telur að dæma hefði ár Geir fyrir víðtækari brot en hann var dæmdur fyrir. Landsdómsmálið var til umræðu á fundi Orators, félags lögfræðinema við Háskóla Íslands og Lagastofnunar Háskóla Íslands, í dag en frummælendur voru Róbert Ragnar Spanó, forseti Lagadeildar Háskóla Íslands, Sigríður Friðjónsdóttir, sem var saksóknari Alþingis í málinu gegn Geir, og síðan Friðrik Árni Friðriksson, lögfræðingur en hann var aðstoðarmaður Andra Árnasonar, lögmanns Geirs, við málareksturinn fyrir landsdómi. Sigríður undraði sig á því að Geir hefði ekki verið sakfelldur fyrir 141. grein almennra hegningarlaga, eins og varakrafa saksóknara í málinu var uppi um. Sú lagagrein, segir að opinber starfsmaður, sem sekur gerist um stórfellda eða ítrekaða vanrækslu eða hirðuleysi í starfi sínu, skal sæta sektum eða fangelsi allt að einu ári. Friðrik sagði rannsókn málsins hafa verið ófullnægjandi, og ekki hefði verið farið eftir grundvallarreglum sakmálaréttarfars, þ.e. að ákvörðun um ákæru væri tekin að lokinni sjálfstæðri rannsókn sem beindist að tilteknum atriðum. Allir frummælendur tóku undir það að gera þyrfti breytingar á lögum, í þá veru að ákæruvaldið í málum er vörðuðu meint brot á lögum um ráðherraábyrgð, yrði tekið frá Alþingi. Smelltu á hlekkinn „Horfa á myndskeið með frétt" til þess að sjá fund Orators í heild sinni.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira