Vilja að innanríkisráðuneytið kanni hvort lög hafi verið brotin Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. maí 2012 13:01 Hanna Birna Kristjánsdóttir er oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins efast um að það standist lög að ársreikningur borgarinnar fyrir síðasta ár hafi verið settur upp án skýrs samanburðar við upphaflega fjárhagsáætlun borgarinnar. Í sveitarstjórnarlögum sé skýrt kveðið á um það að ársreikningur skuli settur fram með þeim hætti að endanleg niðurstaða fjárhagsáætlunar sé borin saman við upphaflega áætlun. Sjálfstæðismenn segja að þar sem borgin hafi ekki getað staðfest að þessi villandi framsetning stæðist umrædd lög hafi borgarfulltrúar flokksins kynnt við afgreiðslu reikningsins að þeir myndu leita álits innanríkisráðuneytisins á málinu. „Það er nauðsynlegt að fá úr því skorið hvort framsetning ársreikningsins standist lög eða ekki. Við höfum margítrekað gert athugasemdir við það að reikningurinn sé settur upp með þeim hætti að næstum ómögulegt sé að bera hann saman við þær áætlanir sem hann á að byggja á. Ársreikningar borgarinnar hafa ekki verið settir fram með þessum hætti í langan tíma og með ólíkindum að meirihlutinn skuli standa að slíkri afturför í upplýsingagjöf, þrátt fyrir ný og skýrari lög um ársreikninga frá síðasta hausti. Slík framsetning er ekki aðeins villandi og vond þegar kemur að því að skoða stöðu og þróun fjármála sveitafélaga, heldur brýtur hún beinlínis gegn því markmiði laganna að ársreikningar séu aðgengilegir og auðvelt sé að bera saman upphaflegar áætlanir og endanlega niðurstöðu." segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðissflokksins í borgarstjórn, í tilkynningu.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira