Héraðsdómur varð ekki við kröfu Ragnars Hall Magnús Halldórsson skrifar 30. maí 2012 15:57
Héraðsdómur Reykjavíkur varð ekki við kröfu Ragnars H. Hall hrl. um að slitastjórn Frjálsa fjárfestingarbankans hf., ætti að segja af sér. Úrskurður þess efnis féll í Héraðsdómi Reykjavíkur 22. maí sl. en það var Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari sem komst að þessari niðurstöðu. Ragnar taldi slitastjórnina hafa ekki staðið sig sem nægilega vel í starfi sínu, þegar kom að því að greiða úr málum fólks, sem eru umbjóðendur Ragnars, og áttu hagsmuni að gætu hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Taldi hann vinnu slitastjórnarinnar hafa gengið alltof hægt og vinnubrögð slitastjórnarinnar ámælisverð. Í úrskurðarorðum héraðsdóms, sem fréttastofa hefur undir höndum, kemur fram að eftir að sjónarmið deiluaðila höfðu verið rædd, og gögnum komið til dómara, hafi það verið hans mat að ekki stæðu efni til þess að víkja slitastjórninni frá. Fundur var haldinn 11. maí með lögmönnum beggja, og síðan bárust bréf frá báðum, 18. og 21. maí, sem dómari tók tillit til. Hann komst síðan að niðurstöðu 22. maí, eins og áður segir. Orðrétt segir í úrskurði héraðsdóms, um fundahöldin og síðan niðurstöðu héraðsdóms: „Á fundinum reifuðu lögmenn beggja aðila sjónarmið sín og lögðu fram gögn til skoðunar. Að því loknu óskaði dómari eftir afstöðu lögmanns kröfuhafa til þess hvort hann héldi fast við kröfu sína um að slitastjórn yrði vikið frá og óskaði lögmaðurinn eftir því að láta uppi afstöðu sína til þess síðar í vikunni. Með bréfi 18. maí sl., barst dóminum bréf lögmannsins þar sem sjónarmið hans eru reifuð enn frekar. Þá barst dóminum bréf slitastjórnar Frjálsa fjárfestingabankans hf., 21. maí sl., þar sem fram koma sjónarmið slitastjórnar. Að virtum þeim skýringum sem fram komu á ofangreindum fundi sem haldinn var 11. maí sl., og þeim gögnum sem þá voru lögð fram til skoðunar fyrir héraðsdómara og lögmann kröfuhafa, verður ekki fallist á kröfu lögmanns kröfuhafa um að víkja slitastjórn frá og skipa nýja menn í hennar stað.“
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Fleiri fréttir Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Sjá meira